Erlent

Giffords á batavegi

Gabrielle Giffords.
Gabrielle Giffords.

Bandaríska þingkonan Gabrielle Giffords sem skotin var í höfuðið í Arizona á dögunum er á batavegi að sögn lækna. Læknar segja meta ástand hennar nú alvarlegt, en segja hana ekki í lífshættu.

Hún hefur verið tekin úr öndunarvél og er sögð sýna batamerki á hverjum degi. Hinn 22 ára gamli Jared Loughner myrti sex og 12 slösuðust. Giffords var skotin af stuttu færi í gegnum höfuðið. Giffords er talin hafa verið aðal skotmark morðingjans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×