Erlent

Hundrað pílagrímar tróðust undir

Frá Indlandi í dag.
Frá Indlandi í dag. Mynd/AP
Indversk stjórnvöld fullyrða að rúmlega hundrað pílagrímar hafi látist í suðurhluta landsins í dag. Fólkið tróðst undir í lok árlegrar trúarhátíðar hindúa við helgidóminn í Sabarimala í héraðinu Kerala.

Pílagrímarnir tróðust undir í mikilli mannþröng sem myndaðist þegar jeppa var ekið á hóp fólks og mikil skelfing greip um sig. Tugir slösuðust en hátt í 150 þúsund hindúar voru á svæðinu þegar slysið varð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×