Fréttir vikunnar: Alvarleg líkamsárás og bankamenn yfirheyrðir Jón Hákon Halldórsson skrifar 23. janúar 2011 21:45 Árásin var gerð við veitingastaðinn Players.
Það var ýmislegt sem vakti athygli í síðustu viku. Ellefu manns voru fluttir á spítala eftir tvö slys á Reykjanesbrautinni á laugardaginn fyrir viku. Sem betur fer meiddist enginn alvarlega. Sama dag sögum við frá því að fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, Carol Van Voorst, sendi langan póst til Bandaríkjanna þar sem hún rökstuddi í fimm liðum afhverju bandarísk yfirvöld ættu að lána Íslandi peninga, sem þáverandi seðlabankastjóri seðlabanka Íslands, Davíð Oddsson, óskaði eftir til að styrkja gjaldeyrisvaraforða íslenska ríkisins. Þetta kom fram í skjölum WikiLeaks sem voru birt á vefnum. Við sögðum svo frá því á sunnudeginum að alvarleg líkamsárás var framin við skemmtistaðinn Players í Kópavogi um klukkan þrjú aðfaranótt sunnudagsins. Karlmaður hafði verið laminn og þegar hann féll í götuna var farið að sparka í höfuð mannsins samkvæmt uplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Á sunnudeginum sögðum við líka frá því að Halldór J. Kristjánsson, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, væri mættur til þess að gefa skýrslu hjá sérstökum saksóknara. Hann kvaðst telja að allt sem hann hefði gert í störfum sínum fyrir bankann hefði verið í samræmi við lög. Á mánudeginum sögðum við frá því að fámennur hópur fólks kom saman á Austurvelli til að mótmæla. Einn var handtekinn en hann var að reyna að stöðva mótmælendur við iðju sína og taldi þá raska ró Alþingis. Maðurinn var færður í lögreglubíl. Á mánudaginn var líka sagt frá því að á fjórða tug vitna og sakborninga hefðu verið yfirheyrðir af embætti sérstaks saksóknara vegna meintrar markaðsmisnotkunar Landsbankans fyrir hrun. Enn er verið að yfirheyra menn í tengslum við málið. Á þriðjudaginn sögðum við frá því að tónlistarmaðurinn Sigurjón Brink, sem er betur þekktur sem Sjonni, varð bráðkvaddur að heimili sínu í Garðabæ kvöldið áður. Sigurjón lætur eftir sig eiginkonu, Þórunni Ernu Clausen, og fjögur börn. Bráðabirgðaniðurstöður krufninga benda til þess að banamein hans hafi verið heilablóðfall. Við sögðum einnig frá réttarhöldum yfir níumenningunum í Héraðsdómi Reykjavíkur. Þeir eru ákærðir fyrir árás á Alþingi. Lögreglan var með viðbúnað í grennd við héraðsdóm en þrátt fyrir snörp orðaskipti í dómssal voru engin ólæti fyrir utan. Fréttamaður Vísis fylgdist með réttarhöldunum allan tímann en aðalmeðferð stóð yfir í þrjá daga. Kúabú á Norðurlandi var sektað um 50 þúsund krónur að vanrækja að tryggja kúnum á búinu lögbundna átta vikna útiveru yfir árið. Á fimmtudaginn sagði Vísir frá því að sérstakur saksóknari væri í húsleitum á þremur stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Til rannsóknar voru millifærslur Landsbankans daginn sem neyðarlögin voru sett í október 2008. Húsleitir voru gerðar í MP banka, Straumi og Seðlabankanum. Fjórir fyrrverandi starfsmenn Landsbankans voru handteknir þennan dag en látnir lausir aftur. Á föstudag sögðum við frá því að foreldrar grunnskólabarna hittust á fundi þar sem ályktun til borgarstjóra var samþykkt. Í ályktuninni er harðlega mótmælt niðurskurði í grunnskólum Reykjavíkur þriðja árið í röð og að enn frekari aðgerðir muni skaða skólastarfið um ókomna framtíð með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir börnin okkar. Í gær sögðum við frá því að Persónuvernd hefði vísað frá máli lögreglumanns sem kærði Þráinn Bertelsson alþingismann til Persónuverndar. Rannsóknarlögreglumaðurinn Ágúst Sigurjónsson sendi Þráni, og átta öðrum þingmönnum, bréf vegna afstöðu þeirra til máls nímenninganna sem ákærðir eru fyrir árás á Alþingi. Þingmennirnir stóðu að þingsályktunartillögu um að fella skyldi málið niður. Þráinn áframsendi bréfið á Stefán Eiríksson lögreglustjóra. Ágúst taldi að Þráni hefði verið óheimilt að senda bréfið til þriðja aðila. Við sögðum líka frá því í gær að það vantar allt að 40 dagforeldra í Reykjavík um þessar mundir. Leikskólasvið Reykjavíkurborgar ákvað því að bregða á það ráð að auglýsa eftir dagforeldrum í Fréttablaðinu. Ragnhildur Erla Bjarnadóttir, sviðsstjóri Leikskólasviðs, segir að þetta hafi líka verið gert í fyrra með góðum árangri.
Mest lesið Segjast hafa lagt undir sig um það bil þúsund ferkílómetra Erlent Þurfi að sýna skynsemi við uppbyggingu vindorkuvera Innlent Malarvagn kramdi bílstjórahús flutningabíls Innlent Ferðamenn í báðum bifreiðum Innlent Ekki óyggjandi sönnun fyrir meintu dýraníði blóðbónda að mati MAST Innlent Starfsmaður Marel lést í flugslysinu í Brasilíu Erlent Hringveginum lokað við Borgarnes vegna elds í vörubíl Innlent Fluttur á sjúkrahús eftir að bát hvolfdi Innlent Gelt á Heiðu Eiríks í miðborginni Innlent Makaði tómatsósu á útidyrahurð nágranna sinna Innlent Fleiri fréttir Þurfi að sýna skynsemi við uppbyggingu vindorkuvera Fluttur á sjúkrahús eftir að bát hvolfdi Ekki óyggjandi sönnun fyrir meintu dýraníði blóðbónda að mati MAST Hringveginum lokað við Borgarnes vegna elds í vörubíl Malarvagn kramdi bílstjórahús flutningabíls Ferðamenn í báðum bifreiðum Landsvirkjun skrefi nær því að reisa fyrsta vindorkuverið Rannsaka hugsanleg veikindi af völdum E.coli Makaði tómatsósu á útidyrahurð nágranna sinna Þvert nei á línuna kom saksóknara í opna skjöldu Gelt á Heiðu Eiríks í miðborginni Hringveginum lokað við Skeiðarársand vegna alvarlegs bílslyss Féll af hesti og var án meðvitundar Hafnar því að hafa reynt að drepa mann og dreifa dópi Maðurinn í Taílandi sagður Íri ekki Íslendingur Stjórnvöld sofi á verðinum meðan Svens sæki í börnin Veikindi í bíl ollu umferðartöfum í gær Þögull sem gröfin Framsókn og VG útiloki ekkert Stærra eldgos væntanlegt Kókaín í héraðsdómi og þreyta á stjórnarheimilinu Enn óljóst hvaðan falsboðið um ferðamennina kom Drukkinn Íslendingur sagður hafa kýlt leigubílstjóra í Taílandi Bar við minnisleysi og sagði ekki um sama Pétur að ræða Hafnar alfarið aðild þrátt fyrir ýmsar vísbendingar um annað Fyrrum húsnæðiseigendur í Grindavík fá að leigja hús Matsferillinn sé svar við gagnrýni á samræmd próf Reyna að sýna fram á tengsl Péturs Jökuls við 99 kíló af kókaíni Leitar ráðgjafar innan og utan ráðuneytis um mál vararíkissaksóknara Biðlisti Rafbókasafnsins geti verið allt að ár Sjá meira