Innlent

„Forseti, nú kjósum við bara aftur“

Margrét Tryggvadóttir þingmaður Hreyfingarinnar sagði á Alþingi í dag að mikilvægasta málið núna væri að stjórnlagaþingið yrði haldið og að Íslendingar fái róttæka endurskoðun á stjórnarskránni.

Hún sagðist geta tekið undir margt í ákvörðun Hæstaréttar því enginn vafi má vera um lögmæti kosninga. „Við verðum að gera ítrustu kröfur," sagði hún. „Forseti, nú kjósum við bara aftur, nýtum tækifærið og gerum þetta óaðfinnanlega."

Hún sagði að halda skyldi stjórnlagaþingið sem allra fyrst. „Við vissum að á leiðinni að stjórnlagaþinginu væru margar þúfur, við höfum nú hrasað um eina."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×