Innlent

Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltu

Mynd úr safni.
Mynd úr safni.
Bíll valt í Ártúnsbrekkunni uppúr klukkan sjö í dag. Tveir farþegar voru í bílnum og voru þeir báðir fluttir á slysavarðstofu. Hvorugur reyndist alvarlega slasaður.

Aðkoman var ekki góð á vettvangi stuttu eftir slysið, samkvæmt upplýsingum frá slökkvuliði Reykjavíkur. Annar farþeginn virtist nokkuð illa slasaður. Eins og áður segir reyndist svo ekki vera. Bíllinn var hins vegar mikið tjónaður og var fluttur burt með dráttarbíl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×