Innlent

Ungliðar skoruðu á þingmenn sína

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ólafur Níelsen formaður SUS.
Ólafur Níelsen formaður SUS.
Samband ungra sjálfstæðismanna skorar á þingmenn Sjálfstæðisflokksins að greiða atkvæði gegn Icesave frumvarpinu í auglýsingu sem þeir birta í Morgunblaðinu í dag. Segja ungir sjálfstæðismenn að þeir hafi frá upphafi beitt sér gegn því að samið verði um Icesave.

Stjórn SUS hafi ályktað mörgum sinnum um málið, haldið fjölmarga fundi með InDefence og fleirum, sent þingflokki Sjálfstæðisflokksins bréf auk þess sem stjórnin veitti InDefence frelsisverðlaun SUS árið 2010 fyrir baráttu sína í málinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×