Innlent

Með blikkandi blátt forgangsljós í glugganum

Vegfarendur um Reykjanesbraut í Kópavogi, tilkynntu lögreglu laust upp úr klukkan eitt í nótt, að þar væri bíll á ferð með blikkandi blátt forgangsljós í framglugganum. Þetta eru ljós, eins og notuð eru í ómerktum lögreglubílum, en þar sem engin slíkur var á ferð var reynt að hafa uppi á bílnum, en án árangurs.

Brot sem þessi eru litin mjög alvarlegum augum og lýsir lögregla eftir frekari upplýsingum um bílinn.

Þrír ökumenn voru teknir úr umferð á höfuðborgarsvæðinu í nótt vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna. Einn þeirra var auk þess réttindalaus og hinir missa að líkindum réttindin. Engin var tekinn vegna ölvunaraksturs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×