Enski boltinn

Mark Ameobi nægði Newcastle gegn Wigan

Elvar Geir Magnússon skrifar

Newcastle vann 1-0 útisigur á Wigan í síðari leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Shola Ameobi skoraði eina mark leiksins á 19. mínútu.

Sigur Newcastle var verðskuldaður en liðið fékk fjöldan allan af færum til að bæta við marki en þau nýttust ekki. Eina markið kom eftir röð mistaka hjá vörn Wigan.

Newcastle er í tíunda sæti deildarinnar með jafn mörg stig og Liverpool, Blackpool og Blackburn. Wigan er í sautjánda sætinu, stigi fyrir ofan fallsæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×