Erlent

Andrés þó!

Óli Tynes skrifar
Who, me?
Who, me?

Alríkisdómari í Pennsylvaníu hefur úrskurðað að kona sem sakar Andrés Önd um að hafa káfað á brjóstunum á sér geti höfðað mál gegn illfyglinu þar í bæ. Hún þurfi ekki að höfða það í Flórída. Það var þar sem meint atvik átti sér stað í Disney skemmtigarðinum, í maí árið 2008.

Apríl Magolon er 27 ára gömul. Hún heldur því fram að síðan þetta gerðist hafi hún þjáðst af streitu sem lýsi sér í martröðum, meltingatruflunum og öðrum kvillum sem muni hrjá hana til frambúðar.

Í málshöfðun hennar segir að starfsmenn skemmtigarðsins séu þekktir fyrir að vera fjölþreifnir. Stjórnendur garðsins láti það óátalið því þeim sé meira umhugað um gróða sinn en öryggi almennings.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×