Cristiano Ronaldo með þrennu í fyrri hálfleik í 4-0 sigri Real Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. október 2011 19:47 Cristiano Ronaldo lætur vaða í kvöld. Mynd/Nordic Photos/Getty
Cristiano Ronaldo skoraði þrennu þegar Real Madrid vann 4-0 útisigur á spútnikliðinu Málaga í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Öll mörk Real-liðsins komu í fyrri hálfleiknum en liðið komst á toppinn með þessum sannfærandi sigri. Argentínumaðurinn Gonzalo Higuaín skoraði fyrsta markið á 11. mínútu eftir sendingu frá landa sínum Ángel Di María og Di María lagði líka upp mark fyrir Cristiano Ronaldo á 24. mínútu. Cristiano Ronaldo bætti síðan við mörkum á 28. og 38. mínútu en það seinna skoraði Ronaldo með glæsilegri viðstöðulausri hælspyrnu eftir hornspyrnu. Cristiano Ronaldo hefur þar með skorað 10 mörk í spænsku deildinni í aðeins átta leikjum en hann var ekki búinn að skora í tveimur leikjum í röð sem þykir mikið á þeim bænum. Gonzalo Higuaín er aftur á móti búinn að skora í fjórum leikjum í röð og alls níu mörk í þeim fjórum leikjum sem hann hefur verið í byrjunarliðinu í spænsku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Real Madrid hefur 19 stig eða tveimur stigum meira en Barcelona sem mætir Sevilla seinna í kvöld. Sevilla getur náð öðru sætinu af Barcelona með sigri á Nývangi í kvöld.
Spænski boltinn Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Íslenski boltinn Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Bragðdauft á Old Trafford Enski boltinn Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Íslenski boltinn „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Birkir á leið til Vals á nýjan leik Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Stefán fær Arsenal í heimsókn Sjáðu glæsimörk táninga og Helga koma Víkingi á toppinn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Heimir „hæstánægður með FH-liðið“ eftir 3-0 tap „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Barcelona jók forskot sitt með herkjum Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm „Draumur að spila fyrir uppeldisfélagið“ Sveindís Jane og Sædís Rún í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Sjá meira