Innlent

Hrafnistumönnum brugðið yfir brunanum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sem betur fer lagði reykinn í áttina frá Hrafnistu. Mynd/ Heiða.
Sem betur fer lagði reykinn í áttina frá Hrafnistu. Mynd/ Heiða.
Íbúum og starfsfólki á Hrafnistu var töluvert brugðið við brunann í Hringrás í nótt, segir Pétur Magnússon, forstjóri Hrafnistu. Eldurinn gaus upp rétt fyrir klukkan þrjú og lagði mikinn reyk frá eldinum.

Hrafnista er staðsett rétt hjá Hringrás en vindáttinn var hagstæð og því fór reykurinn í áttina frá Hrafnistu. „Fólki var töluvert brugðið. En annars er nú okkar heimilisfólk ýmsu vant í gegnum tíðina þannig að þetta hafði nú ekki mjög stór áhrif á fólk," segir Pétur.

Pétur segir að eftir stórbruna í Hringrás árið 2004 hafi verið gerðar athugasemdir við starfsemi Hringrásar eftir brunann 2004. Þá hafi forsvarsmenn Hrafnistu lýst yfir áhyggjum af starfsemi fyrirtækisins. „Og þá var farið skilst mér í endurskipulagningu á brunamálum og hvernig þeim væri háttað og við vorum fullvissuð um það að þetta væri komið í fínt lag. Bæði af forsvarsmönnum fyrirtækisins og einnig af Jóni Viðari sjálfum," segir Pétur. Nú hafi áhyggjur forsvarsmanna Hrafnistu verið endurvaktar með þessu máli.

„Við munum þrýsta á að það verði skoðað hvort að starfsemi þessa fyrirtækis verði ekki betur komiið annarsstaðar en á þessu svæði. Þetta er náttúrlega mjög stórt hverfi og þarna búa margir aldraðir, ekki bara á Hrafnistu sjálfri heldur í allskonar þjónustuíbúðum þarna í kring," segir Pétur


Tengdar fréttir

Gríðarmikill eldur í Sundahöfn

Gríðarlega mikill eldur kviknaði í dekkjum á svæði Hringrásar á fjórða tímanum í nótt. Allt tiltækt lið slökkviliðsins hefur verið kallað út og berst við eldinn. Segjum nánar frá eins skjótt og fréttir berast. Gríðarlega mikill eldur kviknaði í dekkjum á svæði Hringrásar á fjórða tímanum í nótt. Allt tiltækt lið slökkviliðsins hefur verið kallað út og berst við eldinn. Segjum nánar frá eins skjótt og fréttir berast.

Slökkviliðsmenn orðnir þreyttir

"Við erum á lokametrunum. Það er verið að vinna í haugunum og grafa aðeins niður til að ná að slökkva í því sem undir er. Hætta á að þurfa að rýma er yfirstaðinn,“ segir Jón Viðar Matthíasson, um brunann á athafnasvæði Hringrásar við Sundahöfn. Hann segir þá slökkviliðsmenn sem staðið hafa vaktina frá því nótt vera orðna þreytta.

Enn barist við eldinn

"Það er verið að berjast við þetta. Það er allt tiltækt lið á staðnum og jafnframt var aukamannskapur kallaður út. Þeir eru að vinna í þessu,“ segir slökkviliðsmaður sem Vísir talaði við í nótt. Eldur kviknaði á svæði Hringrásar í Sundahöfn um fjögurleytið í nótt.

Líta brunann í Hringrás mjög alvarlegum augum

Borgaryfirvöld líta brunann sem varð í endurvinnslustöð Hringrásar í nótt alvarlegum augum vegna þeirra almannahættu sem eldsvoði á þessum stað getur valdið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Þakklæti til slökkviliðs og lögreglu efst í huga

Orsakir eldsins á svæði Hringrásar við Sundahöfn eru ókunnar. Þegar er hafin handa við að rannsaka eldsupptökin. Eldurinn kom upp í dekkjum á Hringrásarsvæðinu á þriðja tímanum í nótt.

Slökkvistarf gengið greiðlegar en 2004

Mun greiðlegar hefur gengið að ráða niðurlögum eldsins í Hringrás núna en árið 2004, segir Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Hann segir að aðalástæðan sé sú að eldsmatur sé mun minni núna en var þá.

Eldurinn hefur minnkað

Slökkviliðsmenn virðast hafa náð tökum á eldinum. Hann er miklu minni en hann var fyrr í morgun, segir Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari Fréttablaðsins sem stendur vaktina við Hringrás í Sundahöfn.

Aðgerðarstjórn kölluð saman í Samhæfingarmiðstöðina

Aðgerðarstjórn höfuðborgarsvæðisins var kölluð saman í Samhæfingarstöðina í Skógarhlíð í morgun vegna eldsins hjá Hringrás í Sundahöfn. Almannavarnaástandi hefur ekki verið lýst yfir en starfsmenn stöðvarinnar eru í viðbragðsstöðu.

Myndasyrpa frá Hringrásarbrunanum

Mikill eldur gaus upp í stórri dekkjastæðu á athafnasvæði Hringrásar við Sundahöfn á þriðja tímanum i nótt og var allt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu kallað út auk manna á frívakt. Gríðar mikinn og svartan reyk lagði frá eldinum, en svo vel vildi til að vindur var suðaustlægur í nótt og lagði reykinn á haf út, en ekki yfir byggðina eins og gerðist í samskonar bruna á sama stað árið 2004. Þá þurftu á sjötta hundrað manns að yfirgefa heimili sín. Starfsmenn fréttastofu stóðu vaktina og í meðfylgjandi myndaalbúmi má sjá myndir sem Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, og Heimir Már Pétursson, fréttamaður, tóku í nótt og í morgun.

Þarf að taka Hringrás til rækilegrar endurskoðunar - íbúi vill þá burt

"Sem borgara, og að sjálfsögðu nefndarmanni hjá Reykjavíkurborg, þá bregður manni við að þetta sé að gerast á sama stað hjá sama fyrirtæki í annað skiptið. Það þarf að taka þetta til rækilegrar endurskoðunar,“ segir Hjálmar Sveinsson, varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar um eldsvoðann í Hringrás í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×