Innlent

Slökkviliðsstjóri: Spurning að skoða staðsetningu Hringrásar

Það er afar fjölmenn byggð fyrir ofan Hringrás. Árið 2004 þurfti að flytja 600 manns af heimilum sínum vegna eldsvoðans á sama stað.
Það er afar fjölmenn byggð fyrir ofan Hringrás. Árið 2004 þurfti að flytja 600 manns af heimilum sínum vegna eldsvoðans á sama stað. Mynd / Vilhelm
„Þetta er eitt af fáum fyrirtækjum sem við höfum reynslu af," segir Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu, en hann spyr hvort það sé ekki umhugsunarefni fyrir forsvarsmenn Hringrásar að finna fyrirtækinu nýjan stað.

Eins og kunnugt er kviknaði eldur í dekkjastæðu hjá fyrirtækinu um klukkan þrjú í nótt. Allt tiltækt slökkvilið var kallað á vettvang. Slökkvistarfið gekk vel, búið er að ráða niðurlögum eldsins.

Samverkandi þættir urðu til þess að slökkvistarf gekk mun betur í dag en árið 2004 þegar mikill eldsvoði geisaði á sama stað. Þá tók tæpa tvo sólarhringa að slökkva eldinn auk þess sem flytja þurfti 600 manns af heimilum sínum. Þá var vindáttin óhagstæð og lagði því eitraðan mökkinn yfir íbúabyggðina.

Nú var vindáttin hinsvegar suðaustlæg og blés því reyknum á haf út.

Þá fór Hringrás eftir þeim skilyrðum sem krafist var af fyrirtækinu af hálfu heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, sem auðveldaði slökkvistarfið að sögn Jóns Viðars.

„En það er eins og með alla aðra hluti, það þarf stundum að staldra aðeins við," segir Jón Viðar.

„Nú kemur upp annar bruni og því þarf að skoða hvernig hægt er að lágmarka áhættuna enn frekar. Þá er meðal annars stóra spurningin hvort fyrirtækið telji hag sínum best borgið á þessu svæði," segir Jón Viðar sem segir málið sannarlega umhugsunarvert.

Hjálmar Sveinsson, varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar, sagði í viðtali við Vísi í morgun:

„Sem borgara, og að sjálfsögðu nefndarmanni hjá Reykjavíkurborg, þá bregður manni við að þetta sé að gerast á sama stað hjá sama fyrirtæki í annað skiptið. Það þarf að taka þetta til rækilegrar endurskoðunar."

Talið er um íkveikju sé að ræða en lögreglan hefur lýst eftir hverjum þeim sem hefur orðið var við grunsamlegar mannaferðir nærri svæðinu í nótt. Hægt er að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000.


Tengdar fréttir

Gríðarmikill eldur í Sundahöfn

Gríðarlega mikill eldur kviknaði í dekkjum á svæði Hringrásar á fjórða tímanum í nótt. Allt tiltækt lið slökkviliðsins hefur verið kallað út og berst við eldinn. Segjum nánar frá eins skjótt og fréttir berast. Gríðarlega mikill eldur kviknaði í dekkjum á svæði Hringrásar á fjórða tímanum í nótt. Allt tiltækt lið slökkviliðsins hefur verið kallað út og berst við eldinn. Segjum nánar frá eins skjótt og fréttir berast.

Slökkviliðsmenn orðnir þreyttir

"Við erum á lokametrunum. Það er verið að vinna í haugunum og grafa aðeins niður til að ná að slökkva í því sem undir er. Hætta á að þurfa að rýma er yfirstaðinn,“ segir Jón Viðar Matthíasson, um brunann á athafnasvæði Hringrásar við Sundahöfn. Hann segir þá slökkviliðsmenn sem staðið hafa vaktina frá því nótt vera orðna þreytta.

Enn barist við eldinn

"Það er verið að berjast við þetta. Það er allt tiltækt lið á staðnum og jafnframt var aukamannskapur kallaður út. Þeir eru að vinna í þessu,“ segir slökkviliðsmaður sem Vísir talaði við í nótt. Eldur kviknaði á svæði Hringrásar í Sundahöfn um fjögurleytið í nótt.

Þakklæti til slökkviliðs og lögreglu efst í huga

Orsakir eldsins á svæði Hringrásar við Sundahöfn eru ókunnar. Þegar er hafin handa við að rannsaka eldsupptökin. Eldurinn kom upp í dekkjum á Hringrásarsvæðinu á þriðja tímanum í nótt.

Lýst eftir vitnum vegna eldsvoðans

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú bruna sem varð á athafnasvæði Hringrásar við Klettagarða í Reykjavík í nótt.

Slökkvistarf gengið greiðlegar en 2004

Mun greiðlegar hefur gengið að ráða niðurlögum eldsins í Hringrás núna en árið 2004, segir Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Hann segir að aðalástæðan sé sú að eldsmatur sé mun minni núna en var þá.

Eldurinn hefur minnkað

Slökkviliðsmenn virðast hafa náð tökum á eldinum. Hann er miklu minni en hann var fyrr í morgun, segir Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari Fréttablaðsins sem stendur vaktina við Hringrás í Sundahöfn.

Íbúar í Kleppsholti loki gluggum

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur náð tökum á eldi sem logað hefur á Hringrásarsvæðinu frá því á þriðja tímanum í nótt. Tölverðan reyk leggur frá svæðinu. Vindáttin er enn af landi og reyk leggur út á haf. Íbúar í Kleppsholti eru beðnir um að hafa glugga lokaða þó svo að reyk leggi ekki yfir hverfið þar sem lyktarmengun er talsverð, að því er fram kemur í tilkynningu frá almannavörnum.

Aðgerðarstjórn kölluð saman í Samhæfingarmiðstöðina

Aðgerðarstjórn höfuðborgarsvæðisins var kölluð saman í Samhæfingarstöðina í Skógarhlíð í morgun vegna eldsins hjá Hringrás í Sundahöfn. Almannavarnaástandi hefur ekki verið lýst yfir en starfsmenn stöðvarinnar eru í viðbragðsstöðu.

Myndasyrpa frá Hringrásarbrunanum

Mikill eldur gaus upp í stórri dekkjastæðu á athafnasvæði Hringrásar við Sundahöfn á þriðja tímanum i nótt og var allt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu kallað út auk manna á frívakt. Gríðar mikinn og svartan reyk lagði frá eldinum, en svo vel vildi til að vindur var suðaustlægur í nótt og lagði reykinn á haf út, en ekki yfir byggðina eins og gerðist í samskonar bruna á sama stað árið 2004. Þá þurftu á sjötta hundrað manns að yfirgefa heimili sín. Starfsmenn fréttastofu stóðu vaktina og í meðfylgjandi myndaalbúmi má sjá myndir sem Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, og Heimir Már Pétursson, fréttamaður, tóku í nótt og í morgun.

Þarf að taka Hringrás til rækilegrar endurskoðunar - íbúi vill þá burt

"Sem borgara, og að sjálfsögðu nefndarmanni hjá Reykjavíkurborg, þá bregður manni við að þetta sé að gerast á sama stað hjá sama fyrirtæki í annað skiptið. Það þarf að taka þetta til rækilegrar endurskoðunar,“ segir Hjálmar Sveinsson, varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar um eldsvoðann í Hringrás í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×