Innlent

Lýst eftir vitnum vegna eldsvoðans

Varðst þú var við mannaferðir nærri Hringrás?
Varðst þú var við mannaferðir nærri Hringrás? Mynd / Vilhelm
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú bruna sem varð á athafnasvæði Hringrásar við Klettagarða í Reykjavík í nótt.

Tilkynnt var eld skömmu fyrir klukkan þrjú en mikinn reyk lagði frá dekkjum sem kviknaði í.

Vegna rannsóknarinnar biður lögreglan þá sem urðu varir við grunsamlegar mannaferðir í Klettagörðum og nágrenni í nótt að hafa samband í síma 444-1000.

Um er að ræða tímabilið frá miðnætti og til þess að lögregla og slökkvilið komu á vettvang.


Tengdar fréttir

Gríðarmikill eldur í Sundahöfn

Gríðarlega mikill eldur kviknaði í dekkjum á svæði Hringrásar á fjórða tímanum í nótt. Allt tiltækt lið slökkviliðsins hefur verið kallað út og berst við eldinn. Segjum nánar frá eins skjótt og fréttir berast. Gríðarlega mikill eldur kviknaði í dekkjum á svæði Hringrásar á fjórða tímanum í nótt. Allt tiltækt lið slökkviliðsins hefur verið kallað út og berst við eldinn. Segjum nánar frá eins skjótt og fréttir berast.

Slökkviliðsmenn orðnir þreyttir

"Við erum á lokametrunum. Það er verið að vinna í haugunum og grafa aðeins niður til að ná að slökkva í því sem undir er. Hætta á að þurfa að rýma er yfirstaðinn,“ segir Jón Viðar Matthíasson, um brunann á athafnasvæði Hringrásar við Sundahöfn. Hann segir þá slökkviliðsmenn sem staðið hafa vaktina frá því nótt vera orðna þreytta.

Enn barist við eldinn

"Það er verið að berjast við þetta. Það er allt tiltækt lið á staðnum og jafnframt var aukamannskapur kallaður út. Þeir eru að vinna í þessu,“ segir slökkviliðsmaður sem Vísir talaði við í nótt. Eldur kviknaði á svæði Hringrásar í Sundahöfn um fjögurleytið í nótt.

Þakklæti til slökkviliðs og lögreglu efst í huga

Orsakir eldsins á svæði Hringrásar við Sundahöfn eru ókunnar. Þegar er hafin handa við að rannsaka eldsupptökin. Eldurinn kom upp í dekkjum á Hringrásarsvæðinu á þriðja tímanum í nótt.

Slökkvistarf gengið greiðlegar en 2004

Mun greiðlegar hefur gengið að ráða niðurlögum eldsins í Hringrás núna en árið 2004, segir Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Hann segir að aðalástæðan sé sú að eldsmatur sé mun minni núna en var þá.

Eldurinn hefur minnkað

Slökkviliðsmenn virðast hafa náð tökum á eldinum. Hann er miklu minni en hann var fyrr í morgun, segir Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari Fréttablaðsins sem stendur vaktina við Hringrás í Sundahöfn.

Íbúar í Kleppsholti loki gluggum

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur náð tökum á eldi sem logað hefur á Hringrásarsvæðinu frá því á þriðja tímanum í nótt. Tölverðan reyk leggur frá svæðinu. Vindáttin er enn af landi og reyk leggur út á haf. Íbúar í Kleppsholti eru beðnir um að hafa glugga lokaða þó svo að reyk leggi ekki yfir hverfið þar sem lyktarmengun er talsverð, að því er fram kemur í tilkynningu frá almannavörnum.

Aðgerðarstjórn kölluð saman í Samhæfingarmiðstöðina

Aðgerðarstjórn höfuðborgarsvæðisins var kölluð saman í Samhæfingarstöðina í Skógarhlíð í morgun vegna eldsins hjá Hringrás í Sundahöfn. Almannavarnaástandi hefur ekki verið lýst yfir en starfsmenn stöðvarinnar eru í viðbragðsstöðu.

Myndasyrpa frá Hringrásarbrunanum

Mikill eldur gaus upp í stórri dekkjastæðu á athafnasvæði Hringrásar við Sundahöfn á þriðja tímanum i nótt og var allt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu kallað út auk manna á frívakt. Gríðar mikinn og svartan reyk lagði frá eldinum, en svo vel vildi til að vindur var suðaustlægur í nótt og lagði reykinn á haf út, en ekki yfir byggðina eins og gerðist í samskonar bruna á sama stað árið 2004. Þá þurftu á sjötta hundrað manns að yfirgefa heimili sín. Starfsmenn fréttastofu stóðu vaktina og í meðfylgjandi myndaalbúmi má sjá myndir sem Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, og Heimir Már Pétursson, fréttamaður, tóku í nótt og í morgun.

Þarf að taka Hringrás til rækilegrar endurskoðunar - íbúi vill þá burt

"Sem borgara, og að sjálfsögðu nefndarmanni hjá Reykjavíkurborg, þá bregður manni við að þetta sé að gerast á sama stað hjá sama fyrirtæki í annað skiptið. Það þarf að taka þetta til rækilegrar endurskoðunar,“ segir Hjálmar Sveinsson, varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar um eldsvoðann í Hringrás í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×