Innlent

Myndasyrpa frá Hringrásarbrunanum

Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Mikill eldur gaus upp í stórri dekkjastæðu á athafnasvæði Hringrásar við Sundahöfn á þriðja tímanum i nótt og var allt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu kallað út auk manna á frívakt. Gríðar mikinn og svartan reyk lagði frá eldinum, en svo vel vildi til að vindur var suðaustlægur í nótt og lagði reykinn á haf út, en ekki yfir byggðina eins og gerðist í samskonar bruna á sama stað árið 2004. Þá þurftu á sjötta hundrað manns að yfirgefa heimili sín. Starfsmenn fréttastofu stóðu vaktina í nótt og í morgun og í meðfylgjandi myndaalbúmi má sjá myndir sem Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, tók.

Ekki þurfti að rýma hús

Samhæfingastöð almannavarna í Skógarhlíð var mönnuð í nótt vegna brunans, en vegna hagstæðrar vindáttar var ekki almannavarnaástandi lýst yfir og ekki þurfti að rýma nein hús. Íbúar á Kleppsvegi hafa verið hvattir til að halda gluggum lokuðum þó svo að reyk leggi ekki yfir hverfið þar sem lyktarmengun er talsverð. Haft var samband við forráðamenn fyrirtækja á iðnaðarsvæðinu við Klettagarða og nágrenni og þeir hvattirtil að loka fyrir loftræstingu.

60 manna lið slökkviliðsins sprautaði mikilli kvoðu á eldinn og undir morgun kom slökkviliðsbíll frá Reykjavíkurflugvelli með viðbótar kvoðu, en slökkvibíll frá Keflavíkurflugvelli var sendur á Reykjavíkruflugvöll á meðan. Búið er að slökkva eldinn en búist er við að slökkviliðsmenn verði langt fram eftir morgni að drepa endanlega í glæðum.

Minni eldsmatur en í brunanum 2004

Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri, segir í samtali við Vísi að aðalástæða þess að mun betur gekk nú en fyrir fimm árum sé að eldsmatur hafi verið mun minni núna en var þá. Einnig sé búið að gera breytingar á svæðinu. Búið sé að steypa upp skilveggi á milli þeirra efna sem geymd séu á svæðinu.

Engan slökkviliðsmann sakað í aðgerðunum. Eldsupptök eru með öllu ókunn, en rannsókn getur ekki hafist af fullum krafti fyrr en að slökkvistarfi loknu.




Tengdar fréttir

Gríðarmikill eldur í Sundahöfn

Gríðarlega mikill eldur kviknaði í dekkjum á svæði Hringrásar á fjórða tímanum í nótt. Allt tiltækt lið slökkviliðsins hefur verið kallað út og berst við eldinn. Segjum nánar frá eins skjótt og fréttir berast. Gríðarlega mikill eldur kviknaði í dekkjum á svæði Hringrásar á fjórða tímanum í nótt. Allt tiltækt lið slökkviliðsins hefur verið kallað út og berst við eldinn. Segjum nánar frá eins skjótt og fréttir berast.

Enn barist við eldinn

"Það er verið að berjast við þetta. Það er allt tiltækt lið á staðnum og jafnframt var aukamannskapur kallaður út. Þeir eru að vinna í þessu,“ segir slökkviliðsmaður sem Vísir talaði við í nótt. Eldur kviknaði á svæði Hringrásar í Sundahöfn um fjögurleytið í nótt.

Slökkvistarf gengið greiðlegar en 2004

Mun greiðlegar hefur gengið að ráða niðurlögum eldsins í Hringrás núna en árið 2004, segir Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Hann segir að aðalástæðan sé sú að eldsmatur sé mun minni núna en var þá.

Eldurinn hefur minnkað

Slökkviliðsmenn virðast hafa náð tökum á eldinum. Hann er miklu minni en hann var fyrr í morgun, segir Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari Fréttablaðsins sem stendur vaktina við Hringrás í Sundahöfn.

Íbúar í Kleppsholti loki gluggum

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur náð tökum á eldi sem logað hefur á Hringrásarsvæðinu frá því á þriðja tímanum í nótt. Tölverðan reyk leggur frá svæðinu. Vindáttin er enn af landi og reyk leggur út á haf. Íbúar í Kleppsholti eru beðnir um að hafa glugga lokaða þó svo að reyk leggi ekki yfir hverfið þar sem lyktarmengun er talsverð, að því er fram kemur í tilkynningu frá almannavörnum.

Aðgerðarstjórn kölluð saman í Samhæfingarmiðstöðina

Aðgerðarstjórn höfuðborgarsvæðisins var kölluð saman í Samhæfingarstöðina í Skógarhlíð í morgun vegna eldsins hjá Hringrás í Sundahöfn. Almannavarnaástandi hefur ekki verið lýst yfir en starfsmenn stöðvarinnar eru í viðbragðsstöðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×