Körfubolti

Helgi Már stigahæstur í tapleik

Helgi í leik gegn Grindavík.
Helgi í leik gegn Grindavík.
Helgi Már Magnússon átti mjög góðan leik fyrir 08 Stockholm í dag er liðið steinlá gegn Södertalje, 86-67.

Helgi Már skoraði 16 stig, tók 7 fráköst og gaf 2 stoðsendingar. Helgi Már var langstigahæstur í sínu liði og sá eini sem skoraði yfir 10 stig. Hann er heitur þessa dagana en Helgi skoraði 39 stig í síðasta leik.

Södertalja sem fyrr í sjöunda sæti eftir leikinn en Södertalje komst upp í það fjórða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×