Erlent

Einum of alþýðleg

Óli Tynes skrifar
Forsætisráðherrahjónin ásamt börnum sínum.
Forsætisráðherrahjónin ásamt börnum sínum.

Danska leyniþjónustan gnístir tönnum yfir Sólrúnu Lökke, eiginkonu Lars Lökke forsætisráðherra. Í Danmörku er talin mikil hætta á hryðjuverkaárásum. Það er því ströng öryggisgæsla um forsætisráðherrann og fjölskyldu hans. Líka um heimilið. Sólrún Lökke er alþýðleg kona og á það bil að veita fjölmiðlum viðtöl á heimili sínu.

Það gerði hún við sjónvarpsstöðina DR2. Hún var spurð um öryggisráðstafanir. Og fór með sjónvarpsfólkið í labbitúr. Í þessum labbitúr benti hún í allar áttir. -Þarna eru öryggismyndavélarnar, þarna eru hreyfiskynjararnir, þarna eru leysigeislarnir og þarna halda leyniþjónustumennirnir til. Leyniþjónustan er nú að endurskipuleggja varnir heimilisins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×