Erlent

Ævisaga Julian Assange kvikmynduð

Julian Assange.
Julian Assange.

Kvikmyndaframleiðendur í Hollywood hafa keypt kvikmyndaréttinn á ævisögu stofanda WikiLeaks, Julian Assange. Ævisaga Ástralans er ekki komin út en til stendur að gefa bókina út í næsta eða þar næsta mánuði.

Enn á eftir að ráða handritshöfunda til þess að gera æsilega Hollywood-kvikmynd um ævi Assange en þess verður vart lengi að bíða. Ástralinn umdeildi féllst á að rita ævisögu sína til þess að standa straum af lagalegum kostnaði vegna framsalsbeiðni Svía sem hann berst gegn með öllum tiltækum ráðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×