Enski boltinn

Hernandez tryggði Manchester United útisigur á West Brom

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Varamaðurinn Javier Hernandez tryggði Manchester United 2-1 útisigur á West Bromwich Albion í fyrsta leik ársins 2011 í ensku úrvalsdeildinni. United náði með þessum sigri þriggja stiga forskot á nágranna sína í Manchester City sem spila seinna í dag. Þetta var fyrstu útisigur liðsins síðan að liðið vann Stoke 24. október og þá skorað Hernandez einnig sigurmarkið.

Manchester United liðið átti ekki góðan leik og sigurinn var ekki sannfærandi. Heimamenn í West Brom fóru illa með mörg færri í fyrri hálfleik og klikkuðu á víti sem hefði komið liðinu yfir í leiknum í seinni hálfleik.

Það tók Wayne Rooney rétt rúmar tvær mínútur að opna markareikning sinn á nýja árinu en hann skoraði þá með hnitmiðuðum skalla eftir fyrirgjöf frá Patrice Evra. Þetta var fyrsta mark Rooney fyrir United frá því í mars ef ekki eru talin með mörk úr vítaspyrnum.

James Morrison jafnaði hinsvegar leikinn fyrir WBA með glæsilegu skoti ellefu mínútum síðar þegar hann lét bara vaða fyrir utan teig upp í fjærhornið eftir að Nemanja Vidic skallaði boltann frá marki United.

Gary Neville slapp síðan ótrúlega vel á 26.mínútu þegar hann átti að fá dæmt á sig víti og rautt spjald fyrir að brjóta á Graeme Dorrans sem var sloppinn í gegn. Chris Foy, dómari leiksins dæmdi hinsvegar ekki neitt.

Gary Neville var annars í miklum vandræðum allan fyrri hálfeikinn og United gat þakkað fyrir að fá ekki á sig fleiri mörk í hálfleiknum.

West Brom fékk vítaspyrnu á 63. mínútu eftir brot Rio Ferdinand á Jerome Thomas en Peter Odemwingie skaut framhjá markinu.

Manchester United nýtti sér þetta og varamaðurinn Javier Hernandez kom þeim yfir á 75.mínútu með skalla af markteig eftir hornspyrnu Wayne Rooney. Hernandez kom inn á sem varamaður fyrir Dimitar Berbatov fjórtán mínútum áður. Þetta reyndist síðan vera sigurmarkið í leiknum.

Manchester United varð fyrir áfalli á lokamínútunum þegar Wayne Rooney meiddist á vinstri ökkla en United var búið með allar skiptingar sínar og Rooney harkaði því af sér og haltraði inn á vellinum það sem eftir lifði leiksins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×