Kanna skaðabótaskyldu bankaráðsins 10. febrúar 2011 06:00 Kjartan Gunnarsson, Halldór J. Kristjánsson og Sigurjón Þ. Árnason eru krafðir svara vegna málsins. Björgólfur Guðmundsson er gjaldþrota og er því látinn vera.
Slitastjórn og skilanefnd Landsbankans hafa sent fyrrverandi bankastjórum bankans og fjórum fulltrúum í bankaráðinu bréf þar sem óskað er skýringa á þætti þeirra í meintu misferli með fé bankans við hrun hans. Fólkinu er jafnframt greint frá því að hugsanlega sé talið tilefni til bótakrafna á hendur því. Bréfið var sent í byrjun vikunnar á bankastjórana Sigurjón Þ. Árnason og Halldór J. Kristjánsson og fjóra sem sátu í bankaráðinu við hrunið í október 2008; Andra Sveinsson, Kjartan Gunnarsson, Svöfu Grönfeldt og Þorgeir Baldursson. „Í þessum bréfum er verið að koma á framfæri mögulegum kröfum og sjónarmiðum og óska skýringa á ákveðnum atriðum sem hafa komið í ljós við rannsóknir sem hafa farið fram innan bankans,“ segir Páll Benediktsson, upplýsingafulltrúi skilanefndarinnar og slitastjórnarinnar. „Svo er beðið eftir andmælum eða viðbrögðum frá þessum aðilum. Síðan verður það metið í bankanum hvort það verður gripið til einhverra frekari aðgerða.“ Björgólfur Guðmundsson, aðaleigandi bankans og formaður bankaráðsins, fékk ekki bréf af þessu tagi. „Það er fyrst og fremst út af því að hann hefur ekki forræði á sínum málum lengur þar sem bú hans er í gjaldþrotaskiptum,“ segir Páll. „Auk þess hefur bankinn þegar lýst eitthvað um tíu milljarða króna kröfu á hans bú, þannig að það var ekki talin sérstök ástæða til að senda honum svona bréf.“ Hin meintu brot sem nú er kannað hvort sexmenningarnir beri ábyrgð á eru hin sömu og sérstakur saksóknari réðst í aðgerðir vegna fyrir skemmstu. Annars vegar er þar um að ræða fimmtán milljarða millifærslur út af reikningum Landsbankans í Seðlabankanum 6. október 2008, til MP banka og Straums. Síðastnefndu fjármálafyrirtækin höfðu átt í endurhverfum viðskiptum við Seðlabankann ásamt Landsbankanum. Hitt málið snýst um 20 milljarða kaup Landsbankans á bréfum í Landsbankanum sjálfum og Straumi út úr Landsvaka, verðbréfasjóði bankans, sama dag. Páll segir að þetta sé í fyrsta sinn sem slitastjórn eða skilanefnd bankans aðhefst eitthvað af þessu tagi gagnvart bankaráðinu. „Formlega held ég að við höfum ekki beint neinu að þeim öðru,“ segir hann. stigur@frettabladid.is Svafa Grönfeldt
Mest lesið Milla hætt hjá Willum Innlent „Það er öllum brögðum beitt til að koma vörunum sem víðast“ Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir bruna á Amtmannsstíg Innlent Gera sér ekki mat úr lekanum úr framboði Trump Erlent Svipaður hlátur á öllum upptökunum Innlent Skiptu um síma og símkort eins og nærbuxur til að hylja slóð sína Innlent Fóru um víðan völl í samtali á X í gær Erlent Mikill og dökkur reykur í íbúðinni Innlent Tugir þúsunda létust af völdum hita í Evrópu Erlent Starfsmenn Veðurstofunnar í biðstöðu og kvikusöfnun heldur áfram Innlent Fleiri fréttir Milla hætt hjá Willum Fimm milljarðar í húsnæðisúrræði fyrir hælisleitendur Lögreglan leitar að stolnum Volvo Svipaður hlátur á öllum upptökunum Viðskiptaráð biður ráðuneytið um niðurstöður námsmats Telja áform um uppbyggingu vindmyllugarða verulegt áhyggjuefni Skiptu um síma og símkort eins og nærbuxur til að hylja slóð sína Starfsmenn Veðurstofunnar í biðstöðu og kvikusöfnun heldur áfram Sex sóttu um embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar Bruni í miðbænum og Landvernd slæst við vindmyllur Mikill og dökkur reykur í íbúðinni Einn fluttur á slysadeild eftir bruna á Amtmannsstíg „Það er öllum brögðum beitt til að koma vörunum sem víðast“ Þurfi að sýna skynsemi við uppbyggingu vindorkuvera Fluttur á sjúkrahús eftir að bát hvolfdi Ekki óyggjandi sönnun fyrir meintu dýraníði blóðbónda að mati MAST Hringveginum lokað við Borgarnes vegna elds í vörubíl Malarvagn kramdi bílstjórahús flutningabíls Ferðamenn í báðum bifreiðum Landsvirkjun skrefi nær því að reisa fyrsta vindorkuverið Rannsaka hugsanleg veikindi af völdum E.coli Makaði tómatsósu á útidyrahurð nágranna sinna Þvert nei á línuna kom saksóknara í opna skjöldu Gelt á Heiðu Eiríks í miðborginni Hringveginum lokað við Skeiðarársand vegna alvarlegs bílslyss Féll af hesti og var án meðvitundar Hafnar því að hafa reynt að drepa mann og dreifa dópi Maðurinn í Taílandi sagður Íri ekki Íslendingur Stjórnvöld sofi á verðinum meðan Svens sæki í börnin Veikindi í bíl ollu umferðartöfum í gær Sjá meira