Ákvörðun Sjúkratrygginga ógilt 10. febrúar 2011 05:00 Sjúkrakostnaður SÍ mátti ekki stöðva þátttöku í sjúkrakostnaði sjúklinga tannlæknisins.
Velferðarráðuneytið hefur ógilt þá ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands að stöðva þátttöku sína í sjúkrakostnaði sjúklinga tannlæknis á Suðurnesjum 15. október í haust. Úrskurður ráðuneytisins er að stöðvun SÍ hafi verið ólögleg og var ákvörðun SÍ því felld úr gildi. Mál tannlæknisins er nú rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness þar sem hann hefur verið ákærður fyrir að svíkja rúmar 129 þúsund krónur út úr Tryggingastofnun. Af upplýsingum sem veittar voru þegar málið var til umfjöllunar í fjölmiðlum á sínum tíma mátti ráða að tannlæknirinn hefði svikið út allt að 200 milljónum króna. Sjúkratryggingar Íslands gera einkaréttarkröfu í málinu um að honum verði gert að endurgreiða mest ríflega 23 milljónir króna en minnst 129.412 krónur. Velferðarráðuneytið segir í úrskurði sínum að forsenda SÍ um að rekstur tannlæknisins uppfylli ekki lögbundnar kröfur sé röng. Landlæknir hafi eftirlit með því að starfsemi tannlækna uppfylli kröfur og frá landlækni liggi ekki neitt fyrir um að rekstri tannlæknisins sé ábótavant. Þá hafi reglugerðin sem ákvörðun SÍ hafi byggst á tekið gildi 15. september 2010. Henni verði ekki beitt um atvik sem orðin voru áður en reglugerðin tók gildi. Enn fremur uppfylli yfirferð SÍ á reikningum tannlæknisins engar stjórnsýslureglur og ákvörðun um stöðvun greiðsluþátttöku verði ekki byggð á henni. Loks geti SÍ notað ekki matsgerðir í máli sem ekki hafi verið dæmt í sem forsendu fyrir ákvörðun sinni.- jss
Mest lesið Milla hætt hjá Willum Innlent „Það er öllum brögðum beitt til að koma vörunum sem víðast“ Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir bruna á Amtmannsstíg Innlent Gera sér ekki mat úr lekanum úr framboði Trump Erlent Svipaður hlátur á öllum upptökunum Innlent Skiptu um síma og símkort eins og nærbuxur til að hylja slóð sína Innlent Fóru um víðan völl í samtali á X í gær Erlent Mikill og dökkur reykur í íbúðinni Innlent Starfsmenn Veðurstofunnar í biðstöðu og kvikusöfnun heldur áfram Innlent Tugir þúsunda létust af völdum hita í Evrópu Erlent Fleiri fréttir Milla hætt hjá Willum Fimm milljarðar í húsnæðisúrræði fyrir hælisleitendur Lögreglan leitar að stolnum Volvo Svipaður hlátur á öllum upptökunum Viðskiptaráð biður ráðuneytið um niðurstöður námsmats Telja áform um uppbyggingu vindmyllugarða verulegt áhyggjuefni Skiptu um síma og símkort eins og nærbuxur til að hylja slóð sína Starfsmenn Veðurstofunnar í biðstöðu og kvikusöfnun heldur áfram Sex sóttu um embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar Bruni í miðbænum og Landvernd slæst við vindmyllur Mikill og dökkur reykur í íbúðinni Einn fluttur á slysadeild eftir bruna á Amtmannsstíg „Það er öllum brögðum beitt til að koma vörunum sem víðast“ Þurfi að sýna skynsemi við uppbyggingu vindorkuvera Fluttur á sjúkrahús eftir að bát hvolfdi Ekki óyggjandi sönnun fyrir meintu dýraníði blóðbónda að mati MAST Hringveginum lokað við Borgarnes vegna elds í vörubíl Malarvagn kramdi bílstjórahús flutningabíls Ferðamenn í báðum bifreiðum Landsvirkjun skrefi nær því að reisa fyrsta vindorkuverið Rannsaka hugsanleg veikindi af völdum E.coli Makaði tómatsósu á útidyrahurð nágranna sinna Þvert nei á línuna kom saksóknara í opna skjöldu Gelt á Heiðu Eiríks í miðborginni Hringveginum lokað við Skeiðarársand vegna alvarlegs bílslyss Féll af hesti og var án meðvitundar Hafnar því að hafa reynt að drepa mann og dreifa dópi Maðurinn í Taílandi sagður Íri ekki Íslendingur Stjórnvöld sofi á verðinum meðan Svens sæki í börnin Veikindi í bíl ollu umferðartöfum í gær Sjá meira