Erlent

John Barry er látinn

Tónskáldið John Barry lést í morgun eftir hjartaáfall, 77 ára að aldri. John var rómaður fyrir tónverk sín en hann samdi meðal annars tónlistina fyrir myndina Dances with wolves og fjölda James Bond mynda. Hann fékk átta Óskarsverðlaun um ævina og fjögur Grammyverðlaun.

Barry lætur eftir sig eiginkonu til 33ja ára, fjögur börn og fimm barnabörn.

Í myndskeiðinu hér að ofan hafa verið tekin saman brot úr bestu verkum Johns.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×