Innlent

Lýtaaðgerðum fjölgar en fegrunaraðgerðum fækkar

Almennum lýtalækningum hefur fjölgað hér á landi á síðustu árum en sífellt færri fara í fegrunaraðgerðir.
Almennum lýtalækningum hefur fjölgað hér á landi á síðustu árum en sífellt færri fara í fegrunaraðgerðir.
Nær tvöfalt fleiri leituðu til lýtalækna hér á landi á árinu 2009 en árið 2006. Árið 2006 voru skráðar komur til lýtalækna 6.612 og árið 2009 voru þær orðnar 11.647.

Komur eru taldar við hverja heimsókn til lýtalæknis og jafngildir fjöldi koma því ekki fjölda aðgerða. Aðgerðir árið 2006 voru 3.415 en 6.547 árið 2009. Hér er þó einungis um að ræða komur og aðgerðir sem skráðar eru hjá Sjúkratryggingum Íslands (SÍ) og eru þar með niðurgreiddar af stofnun­inni.

Útgjöld SÍ (þá Tryggingastofnunar ríkisins) vegna kaupa á þjónustu lýtalækna fyrir árið 2006 voru tæpar 40 milljónir. Árið 2009 voru útgjöld stofnunarinnar komin upp í tæpar 100 milljónir, sem gerir um 150 prósenta aukningu útgjalda.

Þær lýtalækningar sem tryggingar taka til eru vegna fæðingargalla, þroskafrávika, áverka, sýkinga, æxla eða annarra sjúkdóma. Þá er meðferð ætlað að bæta verulega skerta líkamsfærni og lagfæringu lýta eftir sár eða slys. Greiðslur SÍ taka einnig til útlitseinkenna sem flokkast utan eðlilegs líffræðilegs breytileika. Fegrunaraðgerðir, eins og brjóstastækkanir, svuntuaðgerðir eða andlitslyftingar, eru ekki niðurgreiddar af SÍ.

Ottó Guðjónsson, formaður Félags lýtalækna á Íslandi, segir að ástæður þróunarinnar megi rekja til aukinnar meðvitundar um ýmis heilsufarsatriði, eins og sortuæxli og húðsjúkdóma, sem og til fjölgunar í lýtalækna­stéttinni á þessum árum.

„Það er svo margt sem lýtalæknar taka sér fyrir hendur annað en fegrunaraðgerðir," segir Ottó. „Mikið af vinnunni tengist til að mynda brottnámi sortuæxla og bletta og það er mikil vakning í þeim efnum." Hann bætir við að um leið og lýtaaðgerðum sem þessum fjölgi á milli ára hafi almennum fegrunar­aðgerðum, eins og brjóstastækkunum og andlitslyftingum, fækkað.

Árið 2006 voru sjö starfandi lýtalæknar á Íslandi en þeir voru orðnir ellefu árið 2009. - sv




Fleiri fréttir

Sjá meira


×