Innlent

Gönguhópurinn fundinn

Gönguhópurinn sem björgunarsveitarmenn hafa leitað að á Sveifluhálsi í dag kom í leitirnar rétt fyrir klukkan fjögur. Ekkert amaði að fólkinu enda veður með besta móti. Símasamband náðist við hópinn og björgunarsveitarmenn notuðu sírenur í bílum sínum til þess að láta hópinn heyra í sér. Eftirleikurinn var svo auðveldur þegar fólkið heyrði hljóðin.

Á bilinu 60 - 70 björgunarsveitamenn leituðu að fólkinu en fjórir voru í hópnum sem hugðist ganga frá Kleifarvatni og upp á Sveifluháls um klukkan tíu í morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×