Innlent

Hafið varann á vegna mögulegs vatnstjóns

Það verður líklega mikil rigning þannig fólk er hvatt til þess að huga að niðurföllum. Myndin er úr safni.
Það verður líklega mikil rigning þannig fólk er hvatt til þess að huga að niðurföllum. Myndin er úr safni.

Gert er ráð fyrir töluverðri úrkomu í kvöld og nótt og því hvetur Reykjavíkurborg íbúa að hafa varann á vegna mögulegs vatnstjóns.

Þeir eru hvattir til þess að hreinsa frá niðurföllum og gera ráðstafanir þar sem mögulegt er að vatn flæði og geti valdið skemmdum. Starfsmenn Reykjavíkurborgar hafa í dag hreinsað frá og saltað við niðurföll í gatnakerfinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×