Innlent

Slæmt ferðaveður undir Eyjafjöllum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Eyjafjöll.
Eyjafjöll.
Það er slæmt ferðaveður undir Eyjafjöllum samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Hvolsvelli. Þar er að hvessa töluvert og töluverðri úrkomu er spáð. Því má búast við mikilli hálku og erfiðu færi.

Lögreglan bendir fólki á að fylgjast með upplýsingum um færð og veður á heimasíðu Vegagerðarinnar og leita upplýsinga í síma 1777 sem er þjónustusími Vegagerðarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×