Fótbolti

Nistelrooy aftur til Real Madrid?

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Nistelrooy í leik með Hamburger.
Nistelrooy í leik með Hamburger. AFP
Þýska tímaritið Kicker segir frá því um helgina að Real Madrid vilji fá Ruud van Nistelrooy aftur til félagsins. Hollenski markahrókurinn er meira en til í það.

Nistelrooy fór frá Real fyrir ári síðan og skrifaði undir hjá Hamburger í Þýskalandi. Hann er orðinn 34 ára gamall.

Samningur hans rennur út í sumar en Real vantar sóknarmann vegna meiðsla Gonzalo Higuain.

Nistelrooy skoraði einmitt fyrir Hamburger í gær en félagið á í miklum vandræðum með sóknarmenn og má ekki fyrir nokkra muni missa Nistelrooy.

Hann sjálfur hefur mikinn hug á að snúa aftur til Real, samkvæmt Kicker.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×