Innlent

Yfirmenn reknir frá Sjálfsbjörg

Kolbrún Stefánsdóttir, fráfarandi framkvæmdastjóri Sjálfsbjargar, hefur unnið hjá stofnuninni í fimm ár.
Kolbrún Stefánsdóttir, fráfarandi framkvæmdastjóri Sjálfsbjargar, hefur unnið hjá stofnuninni í fimm ár.
Framkvæmdastjóra og skrifstofustjóra Sjálfsbjargar hefur verið sagt upp störfum. Ekki var farið fram á vinnuskyldu út uppsagnarfrestinn.

Kolbrún Stefánsdóttir, fráfarandi framkvæmdastjóri Sjálfsbjargar, hefur unnið hjá stofnuninni í fimm ár. Hvorki hún né fráfarandi skrifstofustjóri til fjögurra ára, Guðfinna Ásgeirsdóttir, fengu nokkurn fyrirvara á upp sögninni.

Grétar Pétur Geirsson, formaður stjórnar Sjálfsbjargar, segir uppsagnirnar vera hluta af skipulagsbreytingum á starfsemi. Hann segir að ekki verði ráðið í stöður kvennanna til að byrja með. - sv




Fleiri fréttir

Sjá meira


×