Erlent

Ætlar að búa með tveimur ljónum í mánuð

Flórídabúinn James Jablon ætlar að búa í ljónagryfju í heilan mánuð til þess að afla fjár fyrir dýraathvarf sem hann rekur. Jablon fór inn í búrið, þar sem fyrir eru tvö stærðarinnar ljón, á laugardaginn var og ætlar ekki út fyrr en um næstu mánaðarmót. Eina öryggisráðstöfunin sem hann gerir er að byggja sér skjól uppi í tré þangað sem hann getur flúið verði ljónin æst, eða svöng.

Þeir sem vilja geta fylgst með ævintýrinu í gegnum vefmyndavél.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×