Erlent

Britney Spears enn gríðarlega vinsæl

Von er á plötu með Britney í vor en síðasta plata hennar kom út fyrir þremur árum.
Von er á plötu með Britney í vor en síðasta plata hennar kom út fyrir þremur árum.
Bandaríska söngkonan Britney Spears nýtur enn mikilla vinsælda. Von er á plötu með vorinu en fyrir rúmri viku setti hún smáskífu í sölu með laginu Hold It Against Me. Smáskífan hefur slegið í gegn er í efsta sæti á hinum þekkta vinsældarlista Billboards.

Eftir að Britney fékk taugaáfall árið 2008 hefur faðir hennar séð um fjármál og önnur persónuleg mál söngkonunnar. Lítið hefur farið fyrir henni en síðasta plata söngkonunnar kom út 2008.

Í síðasta mánuði voru 12 ár liðin frá því að Britney sendi frá sér sitt fyrsta lag Baby One More Time en þá var hún aðeins 17 ára.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×