Innlent

Sveik rándýran páfagauk af Furðufuglum

Pilturinn sveik út páfagauk af þeirri tegund sem sjá má á myndinni, auk búrs og matar fyrir hann. Gaukinn nefndi hann Húgó.
Pilturinn sveik út páfagauk af þeirri tegund sem sjá má á myndinni, auk búrs og matar fyrir hann. Gaukinn nefndi hann Húgó.

Nítján ára piltur hefur verið ákærður fyrir fjölmörg þjófnaðar- og fjársvikamál. Meðal annars er hann ákærður fyrir að hafa svikið út páfagauk, búr og fóður fyrir rúmlega hálfa milljón úr versluninni Furðufuglum. Gaukurinn er af sjaldgæfri tegund, svokallaður grænvængjaður arnpáfi, og með dýrari fuglum í heimi. Hann sveik pilturinn út á stolið greiðslukortanúmer í gegnum síma og nefndi hann Húgó.

Pilturinn sem um ræðir stóð ýmist einn að brotunum eða í samvinnu við tvo aðra pilta sem einnig eru ákærðir í málinu. Þeir eru sextán og sautján ára gamlir.

Brot piltanna voru mikið í fréttum þegar þeir fóru eins og logi yfir akur í sumar­bústaða­hverfum á Suðurlandi og Vesturlandi, brutust þar inn og létu greipar sópa.

Allir eru piltarnir ákærðir fyrir að hafa brotist í sameiningu inn í sautján sumarbústaði í Grímsnes- og Grafningshreppi. Þar stálu þeir einkum flatskjám, myndavélum, kíkjum og hljómflutningstækjum. Þá eru þeir ákærðir fyrir að stela bíl sem stóð í Grasagarðinum í Laugardal í Reykjavík. Hann notuðu þeir til að komast austur í sumarbústaðahverfið þar sem þeir brutust inn.

Þá er höfuðpaurinn, sá nítján ára, ákærður fyrir að brjótast, ásamt sextán ára piltinum, inn í ellefu sumarbústaði til viðbótar, einnig í Grímsnes- og Grafningshreppi. Þar stálu þeir einnig allmörgum flatskjám, svo og myndavélum, myndbandsupptökuvél og fleiri tækjum. Þeir hirtu nær einungis dýr tæki þar sem þau voru til staðar, en í einstaka tilfellum fengu aðrir munir að fylgja með, svo sem vifta og tuskuhundur.

Höfupaurinn var ákærður fyrir stórfelld fjársvik, eins og að ofan greinir. Samtals sveik hann út vörur og þjónustu út á stolin greiðslukortanúmer fyrir um tvær og hálfa milljón króna. Mestu stal hann frá fyrirtækinu Nova ehf. eða samtals nær 1,2 milljóna andvirði í símainneignum.

Sautján ára pilturinn er svo ákærður fyrir þjófnað úr þremur verslunum og akstur undir áhrifum fíkniefna.jss@frettabladid.is










Fleiri fréttir

Sjá meira


×