Erlent

Kristilegur demókrati vill Ísland í ESB

Þjóðverjinnn Michael Gahler, sem á sæti á Evrópuþinginu fyrir hönd Kristilegra demókrata í Þýskalandi, segir að innganga Íslendinga í Evrópusambandið sé sambandinu mikilvæg af ýmsum ástæðum. Hún muni til dæmis styrkja stöðu Evrópusambandsins innan Norðurskautsráðsins. Það muni aftur ýta undir það að Evrópusambandið setji Norðurskautið í forgangspólitík sína. Auk þess sé verið að uppgötva olíulindir á norðurslóðum og önnur auðlindanýting þar sé sambandinu mikilvæg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×