Innlent

Féll fram af klettum - flutt á spítala með þyrlu

Mynd úr safni
Mynd úr safni
Konan sem þyrla Landhelgisgæslunnar sótti í Vatnsdalsfjörð á Barðaströnd fyrr í kvöld er norskur jarðfræðingur en hún var að vinna að jurtasöfnun á svæðinu þegar hún féll fram af klettum.

Að sögn lögreglunnar á Vestfjörðum var konan talsvert meidd á andliti og mjöðm en þyrla Landhelgisgæslunnar flutti hana á spítala í Reykjavík. Konan var ein á ferð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×