Lífið

Armani hannar fyrir Martin

Tískumógúllinn Giorgio Armani hannar fötin fyrir Ricky Martin á tónleikaferð hans.
Tískumógúllinn Giorgio Armani hannar fötin fyrir Ricky Martin á tónleikaferð hans.
Ricky Martin Popparinn verður vel klæddur á tónleikaferðinni.
Tískumógúllinn Giorgio Armani ætlar að hanna fötin sem Ricky Martin og aðstoðarfólk hans mun klæðast á væntanlegri tónleikaferð söngvarans.

Armani hefur þegar hannað svarta leðurjakka með pönkuðu ívafi sem Ricky ætlar að klæðast í byrjun hverra tónleika. Söngvarinn ætlar einnig að klæðast fötum í suðrænum og afrískum anda á tónleikunum. Armani er sérlega spenntur fyrir samstarfinu við Martin. „Ricky er persónugervingur nútímamannsins og hann er afar hæfileikríkur. Ricky tók þátt í tískusýningu Emporio Armani í Mílanó síðasta sumar og við vorum mjög spennt fyrir því að halda samstarfinu áfram,“ sagði hann.

Armani hefur áður hannað föt fyrir Lady Gaga vegna tónleikaferðar hennar. „Orka hennar, sérviska og miklir hæfileikar koma berlega í ljós á tónleikum hennar. Það var mjög skemmtilegt að sjá henni fyrir fötum og öðrum aukahlutum vegna tónleikaferðarinnar.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×