Innlent

Afsalar sér greiðslu frá ríkinu

Lee Buccheit.
Lee Buccheit.
Lee Buchheit var spurður að því á fundinum í gær hver greiddi fyrir komu hans til landsins til að halda fyrirlesturinn.

Buchheit svaraði því að hann hefði til þessa fengið greitt frá ríkinu fyrir að kynna fólki innihald samningsins, enda hefði hann litið svo á að það væri meðal hlutverka hans sem formanns nefndarinnar.

Í gærmorgun hefði hann hins vegar haft samband við fjármálaráðuneytið og látið vita af því að honum þætti hlutverk hans nú hafa breyst og að þessi fyrirlestur væri ekki bein kynning á efni samningsins. Því myndi hann ekki þiggja greiðslu fyrir ferðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×