Hlýindi breyta fuglalífinu 4. maí 2011 06:45 Glóbrystingur, bókfinka og glókollur Þetta eru dæmi um fugla sem hafa komið hingað til lands á síðustu árum. Sá síðastnefndi verpir reglulega hér.Myndir/Gva, Brynjúlfur Brynjólfsson, Sigmundur ásgeirsson
Bókfinka, fuglar, smáfuglar Ef fram fer sem horfir gætu loftslagsbreytingar haft í för með sér miklar sviptingar í fuglalífi á næstu árum. Nýjar fuglategundir gætu bæst við en aðrar horfið. Þetta segir Kristinn Haukur Skarphéðinsson, dýravistfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands. Kristinn Haukur segir fuglalíf á Íslandi hafa tekið þó nokkrum breytingum undanfarin ár. Um 200 ár eru síðan byrjað var að taka saman yfirlitsrit yfir íslenska fugla. Um 360 tegundir hafa komið hingað til lands en aðeins 75 þeirra verpa hér að staðaldri. Tæplega fimmtíu nýjar fuglategundir hafa reynt að verpa hér einu sinni eða oftar en aðeins fimmtán þeirra hafa náð fótfestu. Sílamávurinn er sennilega þekktasta dæmið en hann kom hingað fyrst um 1930. Örfáar fuglategundir hafa dáið út hér á landi, frægust þeirra er geirfuglinn. „Sumum fuglategundum virðist fækka mjög mikið, til dæmis bjargfugli sem heitir stuttnefja og er skyldur langvíu,“ segir Kristinn Haukur. Ef hlýnunin heldur áfram gætu gróðurbelti færst um 800 kílómetra í norður á næstu fimmtíu árum. „Þá verður Ísland komið enn lengra inn í barrskógarbeltið, sem þýðir að hér skapast skilyrði fyrir marga tugi nýrra tegunda. Aðrar þyrftu hins vegar að láta undan,“ segir Kristinn Haukur. Skrautlegri fuglar gætu þá gert vart við sig. „Þá koma skógarfuglar sem syngja kannski betur en þeir skógarfuglar sem við höfum. Fuglar sem við höfum núna, til dæmis hrafn og snjótittlingur, eru gleðigjafar allt árið. Snjótittlingur mun örugglega láta undan ef hlýnunin heldur áfram. Það er angurvært tístið í snjótittlingnum sem skemmtir fólki yfir dimma vetrardaga, svo það yrði skammgóður vermir af þessum söngfuglum,“ segir Kristinn Haukur. „Þetta er eins og að fá stórhljómsveit sem spilar einu sinni en fer svo burt, á meðan við erum með fína hljómsveit sem spilar allan veturinn.“ - khGlókollur, fugl, smáfugl
Mest lesið „Ekki skemmtilegt að koma svona til baka fyrsta vinnudag eftir sumarfrí“ Innlent Ferðamennirnir ófundnir Innlent Fundu tóman bílaleigubíl og ræsa út leitarhunda Innlent Sendu skilaboð á Neyðarlínuna en enginn fundist á svæðinu Innlent Margir urðu brekkunni að bráð Innlent Ríkið komið um borð í milljarðaverkefni í Eyjafirði Innlent Harris orðin frambjóðandi demókrata og kynnir varaforsetaefni sitt Erlent Hörður Torfason biður Samtökin 78 afsökunar Innlent Óvíst hvort ferðamennirnir séu á yfirgefna bílaleigubílnum Innlent Leitarsvæðið torsótt og erfitt yfirferðar Innlent Fleiri fréttir Telja bílinn ekki á vegum ferðamannanna Maður grunaður um tilefnislausa stunguárás í varðhaldi síðan í janúar Hörður Torfason biður Samtökin 78 afsökunar Óvíst hvort ferðamennirnir séu á yfirgefna bílaleigubílnum Nýrnaveiki staðfest í sjókví í Arnarfirði Leitarsvæðið torsótt og erfitt yfirferðar Fórnarlamb stunguárásar útskrifað af sjúkrahúsi Fundu tóman bílaleigubíl og ræsa út leitarhunda Ríkið komið um borð í milljarðaverkefni í Eyjafirði Víkka út leitarsvæðið án nokkurra nýrra vísbendinga Margir urðu brekkunni að bráð Skjálftavirkni meiri en landris hægara Leitað að ferðamönnum í Kerlingarfjöllum „Ekki skemmtilegt að koma svona til baka fyrsta vinnudag eftir sumarfrí“ Sendu skilaboð á Neyðarlínuna en enginn fundist á svæðinu Handleggsbrotnum bjargað af Baulu Ferðamennirnir ófundnir Björgunarsveitir sækja slasaðan ferðamann á Baulu Útkall vegna ferðamanna sem segjast lokaðir inni í helli Fundinn heill á húfi „Brá verulega að heyra að fangaverðir hefðu slasast“ Dómsmálaráðherra brugðið og umferðin eftir Verslunarmannahelgi Öflugar gufusprengingar hafi orðið í Hveradölum Eyðilögðum tjöldum pakkað saman á gervigrasinu Ekið á búfé og keyrt ofan í læk Helgin fór prýðilega fram í Eyjum Óánægja með ætlað niðurrif á sögulegu húsi á Húsavík Fimm hundruð í Herjólfshöll í nótt og óöld í Bangladess Starbucks kemur ekki til Íslands Ofurölvi vistaður í fangaklefa Sjá meira