Innlent

Gera samninga um starfsnám

Frá HA
Frá HA
Lagadeild Háskólans á Akureyri hefur gert samstarfssamning við embætti Sýslumannsins á Akureyri, Héraðsdóm Norðurlands eystra og stjórnsýsludeild Akureyrarbæjar um tímabundið starfsnám laganema.

Áður hafa laganemar HA notið starfsþjálfunar hjá Héraðsdómi Norðurlands eystra samkvæmt munnlegu samkomulagi við dómstjóra. Lagadeild HA horfir til þess að þessir samningar séu upphafið á því að hægt verði að semja við fleiri stofnanir og fyrirtæki á Norðausturlandi um starfsnám laganema.

- shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×