Körfubolti

Stóriðjutroð og ekkert majónes

Kjartan Guðmundsson og Stígur Helgason skrifar
Svali Björgvinsson segir Guðna Kolbeinsson þýðanda hafa verið mikinn áhrifavald á íþróttalýsingar sínar. Frasinn "býsna víðsfjarri“ eigi til að mynda rætur sínar að rekja til Guðna.
Svali Björgvinsson segir Guðna Kolbeinsson þýðanda hafa verið mikinn áhrifavald á íþróttalýsingar sínar. Frasinn "býsna víðsfjarri“ eigi til að mynda rætur sínar að rekja til Guðna. Mynd/GVA
Síðustu árin hefur Svali Björgvinsson hlotið mikla athygli fyrir frumlegar og bráðskemmtilegar lýsingar á körfuknattleiksleikjum í sjónvarpi. Rætt er við Svala í helgarblaði Fréttablaðsins og rifjuð upp eftirminnileg ummæli hans úr lýsingum.

„Það er hreinlega vegna barnslegrar ástríðu fyrir leiknum sem lýsingarnar grautast út með þessum hætti. En þetta eru engin vísindi. Ég er bara að lýsa körfubolta," segir Svali Björgvinsson, fyrrum landsliðsmaður í körfuknattleik, en lýsingar hans á körfuboltaleikjum á Stöð 2 hafa notið vinsælda síðustu ár og hlotið gríðarlega athygli. Þykir mörgum Svali öðrum fremri í að koma til skila spennunni sem fylgir leiknum með óvenjulegu og kjarnyrtu orðfæri og jafnvel skáldlegum orðatiltækjum.

Svali bætir við að vissulega undirbúi hann sig vel fyrir beinu lýsingarnar og sá undirbúningur hafi í raun hafist þegar hann hóf að fylgjast með körfuknattleik fyrir 36 árum.

„Ég hef líka reynt að átta mig á því hvað mér líkar og mislíkar í fari annarra lýsenda. Guðni Kolbeinsson, þýðandi og snillingur, var að mínu mati meistari lýsinganna. Guðni spilaði körfubolta með ÍR á sínum tíma og bar búninginn vel, og svo lýsti hann nokkrum leikjum þegar RÚV sýndi körfuboltaleiki í eldgamla daga. Það var þá sem ég fór að átta mig á því að hægt væri að skreyta lýsingarnar með skemmtilegri orðanotkun," segir Svali og nefnir sem dæmi að einn frasi frá Guðna sé í miklu uppáhaldi hjá sér; að ákveðin skot séu „býsna víðsfjarri".

Lakers fagna sigri á Celtics fyrr í vetur.Visir/AFP
Leiðist þýddir hækjufrasar

Svali telur mikilvægt að reyna eftir fremsta megni að tala hreint og kjarnyrt íslenskt mál í sínum lýsingum. Til að mynda leiðist honum hækjufrasar sem þýddir eru úr ensku á borð við „að stíga upp", eða „step up" á ensku. „Það er hægt að koma þessari hugsun eða fyrirbæri frá sér með einföldum hætti á íslensku. Það þarf ekki að klæmast með orðskrípi til þess."

Hann segir einnig mikilvægt að lýsandinn sjálfur hafi gaman af því sem hann gerir, enda sé það lykillinn að árangri í flestu sem mannskepnan tekur sér fyrir hendur. Hluti af því er að hafa ákveðið þema í hverjum leik sem hann lýsir.

„Þessi þemu koma oft þegar ég er á leiðinni að lýsa og er að hugsa um daginn sem er að líða. Oft eru þetta hvorki miklar né djúpar greiningar og ég reyni að koma þeim frá mér án þess að það sé of skýrt. Raunar þarf sennilega áhugasaman bókmenntafræðing með mikið hugmyndaflug til að átta sig á þeim tengingum sem þar koma fram. Ég vil engum svo illt að ég hvetji fólk til að reyna að rýna í þær með vitrænum hætti um miðja nótt. En þemað gerir lýsinguna ögrandi fyrir mig," segir Svali og nefnir Lögreglukórinn, yfirlögregluþjóninn Geir Jón Þórisson, kattasmölun og Gunnars-majónes sem dæmi um þemu sem hann hefur bryddað upp á í lýsingum sínum.

Aðspurður segir Svali marga hafa haft samband við sig og lýst yfir ánægju með lýsingarnar og slíkt gleðji hans litla hjarta.

Kevin Durant og félagar í bandaríska liðinu fagna sigri á HM 2010.Vísir/AP
Margt óhollara en körfubolti

Síðustu árin hefur Svali lýst jafnt íslenskum sem erlendum körfuknattleiksleikjum í sjónvarpi. Hann segist finna fyrir auknum áhuga á íslenska boltanum síðustu ár, en auk þess sé þéttur hópur sem ávallt fylgist með bandarísku NBA-deildinni.

„Fólk miðar oft við þann tíma þegar Michael Jordan var upp á sitt besta, sem var ákveðin hæð. En svo rísa önnur stórstirni upp sem trekkja að, eins og Lebron James. Þetta er mjög skemmtilegt sjónvarpsefni og frábær íþrótt. Hver og einn verður að hafa sína fíkn og margt er óhollara en þessi fíkn."

Lýsandinn spáir téðum Lebron James og félögum hans í Miami Heat sigri í NBA-deildinni í ár. „Við í ferða- og menningarfélaginu Ýsa í orlí, sem erum um tuttugu talsins, spáðum um úrslitin. Ég tippaði á Miami og geri enn. En ég vona samt að Dirk Nowitzki og Dallas Mavericks vinni þetta. Það væri gott fyrir boltann, því hann er ótrúlegur íþróttamaður," segir Svali.



Á Svalavaktinni: Nokkrar eftirminnilegar lýsingar Svala

„Þetta er náttúrulega Kárahnjúkastykki. Fullþroskað karldýr“.

„Vel gert hjá Howard. Þrjú víti í röð og kennir þeim að kaupa einhverjar aðrar kartöflur heldur en þessar.“

„Kemur ekki minn maður, pennavinur til margra ára, setur niður þrist og honum finnst þetta ekki einu sinni fyndið. Hann bara setur þetta niður, segir namminamm og takk fyrir túkall.“

„Rasheed, það þarf einhver að setja kælipoka ofan í stuttbuxurnar hans til að róa hann. Það að jafnaði róar menn og dreifir huganum.“

„Fisher, minn maður, maður.Hvílíkur gangster maður. Þvílíkt ofurmenni. Við erum að tala um starfsmann mánaðarins, maður. Hann bara smellir upp, snarörvhentur maður, og setur niður þrist.“

„Þetta er maður fullhlaðinn af tröllamjöli.“ 

„Þetta er náttúrulega alvöru kengúra. Algjörlega toppmaður.“

„Allir að hitta og þá eru þeir bara eins og góð kjötsúpa; full af kryddi og áhugaverðum bitum.“

„Þetta er að fara alla leið. Alla leið á Bíldudal.“

„Lakers-liðið, það er bara eins og þeir hafi farið í vitlaus undirföt. Þeir geta ekki neitt. Það þarf að hringja í þessa menn.“

„Það er engin vitleysa í þessu. Enginn ísbjörn. Og enginn tollur.“

„Þessi troðsla hjá Kevin Durant er alveg fáránleg. Það er í raun móðgun við þessa troðslu að reyna að lýsa henni.“

„Gasol ákveður að setjast inn í teig. Jafnan ekki góð ákvörðun.“

„Hann er eins og góð afmælisterta – mættur á svæðið“.

„Þessi maður getur ekki verið heimatilbúinn. Það þarf eitthvað undraduft í svona menn.“

„Áhugavert hvað hann er örvhentur.“

„Einhverra hluta vegna stendur hann þarna úti á miðjum velli eins og hann sé að bíða eftir strætisvagni.“

„Þetta er náttúrulega bara vínarbrauð.“

„Stojakovic stígur út af. Það má ekki í þessari íþrótt jafnvel þótt menn séu með huggulegan skeggvöxt.“

„Það eru forréttindi að hafa svona snjalla menn á bekknum, hugaða og kurteisa.“

„Nú fer hann bara upp af fullum krafti og kemur með stóriðjutroð. Ekkert majónes, bara fullur styrkur og fullt af kryddi.“

„Tapaður knöttur. Þetta er náttúrulega lögreglumál.Spurning um að fá lögreglukórinn í hálfleik til að taka eitt lag yfir þessu.“

„Þetta er ekki úr Kolaportinu – þetta er alveg rándýrt.“

Dwight Howard með kraftmikla troðslu.
Troðkvarðarnir þrír

„Troð eru augljóslega þrívíddarfyrirbæri,“ segir Svali þegar hann er beðinn um að útskýra sum orðanna sem hann notar gjarnan yfir misvel heppnuð tilþrif körfuboltamanna. „Þau skiptast í kraft, viðhorf/skilaboð og fagurfræði. Þetta reyni ég að skilgreina á kvarða,“ útskýrir Svali. Hér á eftir fara kvarðarnir þrír, ásamt útskýringum Svala þar sem þær eiga við.

Kraftur:

1. Nudd/klapp

2. Majónestroð – „Kom þegar Gunnars-majones var þema dagsins og lýsir vel slepjulegu troði sem er engum til sóma. Hvorki viðkomandi leikmanni, né fjölskyldu hans. En viðkomandi leikmaður telur sig vera að gera eitthvað uppbyggilegt, en safnar bara fitu til lengri tíma.“

3. Iðnaðartroð – „Troðið meira af skyldurækni en af ástríðu. Leikmaður veit að fólk borgar sig á völlinn til að sjá troð, en það vantar bæði kraft og viðhorf í allt fas viðkomandi. Viðkomandi uppfyllir troðskyldur sínar, en ekkert meira.“

4. Stóriðjutroð

5. Kárahnjúkatroð

6. Risaeðlutroð

7. Fellibylur

„Svo eru mörg fleiri orð sem hafa verið notuð, til dæmis eru Górillutroð og ruggustóllinn mjög lýsandi. Þetta skýrir sig allt sjálft, en með þessu er verið að fanga kraftinn í troðinu.“

Viðhorf/skilaboð:

1. Inniskórinn – „Í raun ekkert viðhorf, maður í innskóm á ekki mikið að rífa kjaft.“

2. Umhverfisvænt troð – „Ekki auka orka en samt alvöru.“

3. Ég-er-farinn troð – „Dæmigert viðhorf hjá barni sem ætlar að koma einhverju til skila, en fer svo aldrei neitt.“

4a. Er-enginn-heima troð – „Þetta var þemað þegar virtur þingmaður sem kaus að tilkynna að hann yrði ekki heima á afmælisdaginn sinn.“

4b. Á-einu-augabragði troð – „Lýsir því ef einhver veit ekki alveg hvað hann er að gera en reynir að böðlast í gegnum aðstæður.“

4c. Sauðnautið – „Villt troð og sjaldgæft, en ekki endilega fallegt.“

5. Gillzeneggertroð – „Þegar leikmenn með mikla þörf fyrir athygli eru að reyna mikið en tekst ekki alveg. En ég ber samt virðingu fyrir því að viðkomandi sé að reyna. Ekki endilega aumkunarvert, en samt á mörkunum.“

6. Flautuketill/skinkutroð.

7. Lögreglukórinn – „Þegar öllu er tjaldað til, ekkert sparað.“

8. Mjölnir – „Gamalt íslenskt orð yfir hamar Þórs.“

Fagurfræði/listfengi

1. Snúður eða vínarbrauð – „Vísar til upprunans.“

2. Þarf-eitthvað-að-ræða-þetta? Troð.

3. Krydd

4. Kameljónið – „Einhver sem gerir eitthvað sem ég á ekki von á, aðlagast umhverfinu með undraverðum hætti.“

5. Hámenningartroð – „Fagurfræðilega fullkomið og ætti að vera lokaatriði á Listahátíð.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×