Erlent

Þrisvar tekinn fullur sömu nótt

Lögreglan í Óðinsvéum í Danmörku hafði þrívegis afskipti af 28 ára gömlum manni vegna ölvunaraksturs á nokkurra klukkustunda tímabili í fyrrinótt.

Hann var fyrst stöðvaður við reglubundið eftirlit lögreglu um klukkan eitt og svo aftur rúmum tveimur tímum síðar og var hann í bæði skiptin færður til blóðprufu og síðan sleppt lausum. Hann lét sér hins vegar ekki segjast og klukkan hálf sex um morguninn var hann handtekinn í þriðja sinn.

Hann þarf ekki að óttast ökuleyfissviptingu, því að hann hefur verið leyfislaus um hríð. - þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×