Erlent

Ísraelar reyna að hindra för

Alice Walker. Bandaríski rithöfundurinn ætlar að sigla með. Mynd/AP
Alice Walker. Bandaríski rithöfundurinn ætlar að sigla með. Mynd/AP
Skipuleggjendur alþjóðlegs mótmælendaflota, sem hyggst sigla frá Grikklandi til Gasasvæðisins, saka ísraels stjórnvöld um að reyna að fá grísk stjórnvöld til að meina flotanum að sigla.

Sams konar floti sigldi í áttina að Gasasvæðinu á síðasta ári, en þeirri ferð lauk með árás ísraelskra hermanna. Níu manns létu þá lífið.

Með siglingunni hyggjast mótmælendurnir vekja athygli á þeirri einangrun sem ísraels stjórnvöld hafa haldið íbúum á Gasa í árum saman.

- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×