Borgarlandið óvenjulega loðið 1. júlí 2011 09:00 Margir hafa tekið eftir því að sjaldnar er slegið í borgarlandinu nú en áður. Víða er að sjá sem kargaþýfi sé á túnum. Mynd/Anton Brink
Ófáir hafa orðið varir við samdrátt í slætti í landi Reykjavíkurborgar, en niðurskurðarhnífurinn hefur borið niður þar eins og víða annars staðar í kreppunni. Umferðareyjar og spildur víða í borginni þykja heldur loðnar, enda er slegið sjaldnar núna en fyrir hrun. Guðrún Hilmisdóttir hjá framkvæmda- og eignasviði borgarinnar segir viðmiðið að slá allt borgarlandið þrisvar sinnum í sumar. Á því séu þó undantekningar, en reynt sé að halda sig við það mark. Óhægt er um vik með samanburð frá því fyrir hrun, en þá var slegið mismunandi oft á svæðum eftir þörfum. Við stofnbrautir og fjölfarin svæði var slegið fimm sinnum að sumri, en nú aðeins þrisvar, líkt og áður segir. Vegagerðin hefur umsjón með þjóðvegum í þéttbýli. Hún sagði upp viðhaldssamningum við sveitarfélögin í vor og sér því um grasslátt meðfram þeim núna. Til þeirra heyra Kringlumýrarbraut, Miklabraut og Sæbraut, svo dæmi séu tekin. Sláttur þar fer þó í sameiginlegt útboð með öðrum svæðum í borginni. Guðrún segir ekkert launungarmál að samdráttur hafi orðið í slættinum. „Það er slegið minna en áður, farnar færri umferðir. Það hefur verið árlegur niðurskurður í slættinum frá hruninu og þetta eru viðbrögð við þeim niðurskurðarkröfum sem á okkur voru settar.“- kóp
Mest lesið Fékk besta nafnið frá frú Vigdísi Innlent Í eðli okkar að fylgjast með náunganum Innlent Lést af völdum sprengju sem var falin fyrir tveimur mánuðum Erlent „Hér er um fullkomlega eðlileg viðskipti að ræða“ Innlent Hópar slógust en enginn ætlar að kæra Innlent Umfangsmestu fangaskipti frá tímum kalda stríðsins Erlent Leiðtogi Hezbollah boðar „nýjan fasa“ eftir að farið var yfir „rauðar línur“ Erlent Alldjúp lægð færir með sér gula viðvörun Veður Vildu að Navalní yrði hluti af fangaskiptunum sögulegu Erlent Hlý og góð tilfinning að mæta á Bessastaði Innlent Fleiri fréttir Úrkoman í júlí sló met Fer yfir hvernig maður er með öryggið á oddinum yfir versló Í eðli okkar að fylgjast með náunganum Fékk besta nafnið frá frú Vigdísi Hópar slógust en enginn ætlar að kæra „Hér er um fullkomlega eðlileg viðskipti að ræða“ Hlý og góð tilfinning að mæta á Bessastaði Borinn niður af klettaborginni VG mælist með 3,5 prósent Furðar sig á kjötafurðarstöðvunum Frú forseti, klútaveisla og undrandi bændur Fólk keyri ekki fyrr en tólf tímum eftir síðasta sopa „Mýkri leiðir í hörðum heimi“ Tjá sig ekki eftir fullyrðingar ráðuneytisins í nafnabreytingarmálinu Máttu ekki synja kvikmyndagerðarmanni um eftirvinnslustyrk Fólk á förnum vegi: Ein felldi tár og önnur mjög spennt fyrir Höllu Halla Tómasdóttir orðin sjöundi forseti lýðveldisins „Covid virðist vera komið til að vera“ Allt að verða klárt fyrir embættistöku sjöunda forseta lýðveldisins Árásum gegn opinberum starfsmönnum fari fjölgandi Embættistaka, Covid-19 og hótanir í garð lögreglu Aukinn viðbúnaður til að bregðast við eggvopnaógn Rafbílar rétta aðeins úr kútnum eftir dýfu „Ég hef látið orð út úr mér sem hefðu átt að vera ósögð“ Fjórðungur landsmanna sótti símenntun í fyrra Íbúum með skráð lögheimili í Grindavík fækkað um tæpan þriðjung Vandræðasaga Helga: Skortur á hommum, meint „kerlingartussa“ og Facebook-þumallinn Ók á mann og stakk af Rangt að ráðuneytið hafi gefið út leiðbeiningar um kenninöfn Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílveltu í Sjálandi Sjá meira