Innlent

Tekist á um forræði kynferðisbrotamála

Mynd/Pjetur
Forstjóri Barnaverndarstofu vill láta færa rannsókn á alvarlegum brotum til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum gagnrýnir þessi orð harðlega og vill umboð til rannsókna í Vestmannaeyjum.

Lögreglan á Selfossi sinnir rannsókn á kynferðisbrotamálum sem eiga sér stað í Vestmannaeyjum. Karlmaður á fimmtugsaldri, búsettur í Vestmannaeyjum, var úrskurðaður í mánaðar gæsluvarðhald fyrir viku síðan, grunaður um að hafa níðst kynferðislega á ungri stjúpdóttur sinni mánuðum saman árin 2009 og 2010. Maðurinn er einnig grunaður um að hafa misnotað tvær stúlkur til viðbótar.

Málið kom fyrst inn á borð yfirvalda vorið 2010. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins varð talsverð töf á rannsókn lögreglu á sínum tíma vegna samgönguörðugleika, en Landeyjahöfn var lokuð og því komust rannsóknarlögreglumenn ekki til Eyja svo dögum skipti. Að fara í gegnum Þorlákshöfn var talið taka of langan tíma og of kostnaðarsamt þótti að fljúga.

Lögreglustjórinn á Selfossi, Ólafur Helgi Kjartansson, hefur verið gagnrýndur fyrir að hafa ekki úrskurðað manninn í gæsluvarðhald síðastliðið haust.

Félagsmálayfirvöld í Vestmannaeyjum, sýslumannsembættið og lögfræðingur stjúpdóttur mannsins, mæltust öll til þess að slíkt yrði gert, í ljósi alvarleika málsins og þeirra hörðu staðreynda sem lágu fyrir. Þrátt fyrir það var maðurinn fyrst úrskurðaður í gæsluvarðhald á laugardaginn var, þegar Héraðsdómur Suðurlands kvað upp úrskurð sinn. Maðurinn er meðal annars sakaður um nauðgun.

Maðurinn tók ofbeldisverk sín upp á myndband og við leit lögreglu fannst fjöldi ljósmynda og hreyfimynda sem maðurinn hafði bæði tekið sjálfur og aflað sér á netinu.

Málin betur sett í Reykjavík
Karl Gauti Hjaltason, sýslumaður í Vestmannaeyjum.
Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, segir að vitað sé að brotamenn sem fremji ítrekuð og gróf brot gegn fleiri en einu barni, séu afar hættulegir. Eðlilegast hefði verið að úrskurða manninn í gæsluvarðhald þegar rannsóknarniðurstöður lágu fyrir síðastliðið haust. Þarna hafi yfirvöldum orðið á mistök.

„Það sem við sjáum í Vestmannaeyjum er óréttlætanlegt," segir Bragi og bætir við að hann telji rétt að skoða hvort rannsókn alvarlegra mála sem þessa ættu frekar heima hjá kynferðisbrotadeild lögreglunnar í Reykjavík. „Það er óumdeilt að kynferðisbrotadeild lögreglunnar í Reykjavík býr, vegna stærðar sinnar, yfir mestri sérþekkingu á þessu sviði," segir Bragi. Hann ítrekar þó að hann sé ekki að gera lítið úr rannsóknarstarfi lögreglunnar annars staðar á landinu, þar sem erfið mál séu oft leyst vel af hendi.

Rannsókn málsins í Vestmannaeyjum hefur tekið langan tíma og eru liðnir átta mánuðir síðan sýslumaðurinn á Selfossi ákvað að krefjast ekki gæsluvarðhalds yfir manninum. Bragi hefur miklar áhyggjur af því hvað rannsóknartími sé almennt langur og telur að það að flytja rannsóknina á höfuðborgarsvæðið yrði liður í að stytta hann.

Nálægð geti skapað vandaÍ Vestmannaeyjabæ búa rúmlega fjögur þúsund manns. Bragi segir það borðliggjandi að í þeim samfélögum þar sem návígi er mikið séu miklar líkur á að barn og nánustu aðstandendur þurfi að umgangast gerandann, hitta hann eða sjá.

„Þessi mikla nálægð rannsakenda við sakborninga er enn ein ástæða þess að ég tel að það þyrfti að koma á meiri fjarlægð. Þetta getur verið erfitt fyrir lögreglulið," segir hann. „Reyndar voru gerðar breytingar fyrir nokkrum árum og rannsóknardeildum fækkað, sem var spor í rétta átt."

Umdæmi hafi forræðiKarl Gauti Hjaltason, sýslumaður í Vestmannaeyjum, gagnrýnir orð Braga harðlega og segir þau sleggjudóma. „Mér finnst það skjóta mjög skökku við að Bragi setji fram fullyrðingar í þessu máli. Hann kemst að þeirri niðurstöðu, án þess að þekkja til málsins, að það skipti máli hvar menn búi á landinu. Við erum með áratugareynslu í lögreglurannsóknum," segir Karl Gauti. „Svona sleggjudómar, að ekki sé hægt að rannsaka neitt nema í Reykjavík, eru algjörlega tilhæfulausir og ég er mjög ósáttur við þá. Það fer eftir reynslu mannanna, ekki búsetu þeirra."

Karl Gauti segir rannsókn málsins vissulega hafa tekið langan tíma, en sá tími sé fullkomlega rökstuddur vegna þess hversu umfangsmikið og flókið málið var. Tölvugögn mannsins hafi til að mynda verið í fjóra mánuði í tæknirannsókn hjá lögreglunni í Reykjavík.

Karl Gauti er þeirrar skoðunar að mál sem þessi séu betur komin hjá rannsóknardeildum í viðkomandi umdæmi og lögreglustjóri á viðkomandi svæði eigi að hafa yfirumsjón með þeim og eftir atvikum með aðstoð mannmeiri embætta. „Við verðum að hafa þann mannafla í Vestmannaeyjum sem til þarf til að bregðast við svona málum," segir hann. „Löggæslu verður ekki sinnt í gegn um áætlunarferðir."

Framkvæmdastjóri félagsmálayfirvalda í Vestmannaeyjum, Jón Pétursson, gerði athugasemdir í mars við hvað málið tæki langan tíma í vinnslu. „Við vildum að hagsmunir barnanna yrðu tryggðir og því ætti að setja manninn í gæsluvarðhald," segir hann. „Við ítrekuðum að það væri afstaða barnaverndaryfirvalda í bænum." Hann tekur undir orð Karls Gauta, að fjarlægðin frá Vestmannaeyjum til Selfoss hafi spilað inn í þann tíma sem tók að rannsaka málið. Þegar tafir eigi sér stað vegna manneklu eða erfiðleika við samgöngur, sé það vissulega áhyggjuefni. Þegar lá fyrir að maðurinn yrði ekki úrskurðaður í gæsluvarðhald, var því beint til lögreglunnar í Vestmannaeyjum að hafa gætur á manninum og ganga úr skugga um að hann væri ekki í nágrenni við börn. Því var fylgt eftir. Barnaverndaryfirvöldum hefur ekki borist vitneskja um fleiri fórnarlömb mannsins.


Tengdar fréttir

Afar fátítt að gæsluvarðhalds sé krafist

Helgi Gunnlaugsson, afbrotafræðingur við Háskóla Íslands, segir það ekki nýtt af nálinni að meintir kynferðisbrotamenn séu ekki settir í gæsluvarðhald eftir að kæra hefur verið lögð fram. Fjöldann sé hægt að telja á fingrum annarrar handar af tugum eða hundruðum mála.

Fleiri mál í Eyjum

Karlmaður á áttræðisaldri, búsettur í Vestmannaeyjum, var sýknaður í Hæstarétti af ákæru um kynferðisbrot gegn fimm ára stúlku í mars síðastliðnum. Rúmur mánuður leið frá því að stúlkan greindi lögreglu frá meintu broti þar til að hún var færð í Barnahús til skýrslutöku.

Innanríkisráðherra vill skýringar

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur kallað eftir greinargerð um meðferð Ríkissaksóknaraembættisins og lögreglustjórans á Selfossi á málinu í Vestmannaeyjum. Innanríkisráðherra er gert samkvæmt lögum að hafa eftirlit með framkvæmd ákæruvalds og getur hann farið fram á að Ríkissaksóknari láti í té gögn og greinargerð um meðferð einstakra mála.

Tilkynningum fækkar um 13%

Tilkynningum til barnaverndarnefnda fækkaði um 13 prósent fyrstu þrjá mánuði ársins 2011, borið saman við sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram í frétt á vef Barnaverndarstofu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×