Minna rusl í kreppu 2. júlí 2011 07:00 Mynd/Heiða Helgadóttir
Starfsmenn í urðunarstöðinni í Álfsnesi merkja greinilega breyttar neysluvenjur Íslendinga eftir hrun. Samanlögð þyngd alls þess sorps sem barst stöðinni í fyrra var rúmum 70 þúsund tonnum minni en þyngd þess sorps sem komið var með árið 2008. Til samanburðar má geta þess að leyfilegur heildarafli á ýsu fyrir síðasta fiskveiðiár var 68.479 tonn eða rúmum fimmtán hundruð tonnum minna en samdrátturinn á magni sorps á tveimur árum. Samdrátturinn á þessum tveimur árum nemur rúmum 35 prósentum. Bjarni Gnýr Hjarðar, yfirverkfræðingur þróunar- og tæknideildar Sorpu, segir að fljótlega eftir bankahrunið í október 2008 hafi Sorpumenn orðið varir við þetta breytta neyslumynstur. „Þegar góðærið var hvað mest tókum við á móti 450 tonnum á dag í Álfsnesi en nú eru þetta um 300 tonn á dag. Við urðum meira að segja að bregðast við þessum samdrætti með því að stytta vinnutímann um eina og hálfa klukkustund.“ Árið 2008 tók urðunarstöðin á móti tæplega 200 þúsund tonnum af sorpi. Gróft áætlað má segja að það samsvari tæplega 31 þúsund bílhlössum hjá venjulegum öskubíl. Á síðasta ári var einungis tekið á móti rúmum 128 þúsund tonnum eða tæplega 20 þúsund bílhlössum. Sorpið frá góðærinu kemur sér reyndar nokkuð vel í Álfsnesi en þar er unnið úr því og hreinsað metangas. Framleiðslan er ekki langt frá milljón rúmmetrum á ári. Fréttablaðið fór í heimsókn í urðunarstöðina í Álfsnesi og komst að því að vargfuglinn er ekki heimskari en svo að hann flýr um leið og hann sér bíl meindýraeyðisins nálgast. Þó liggja þúsundir fugla í valnum árlega.- jse / sjá síðu
Mest lesið Fékk besta nafnið frá frú Vigdísi Innlent Í eðli okkar að fylgjast með náunganum Innlent Lést af völdum sprengju sem var falin fyrir tveimur mánuðum Erlent „Hér er um fullkomlega eðlileg viðskipti að ræða“ Innlent Hópar slógust en enginn ætlar að kæra Innlent Umfangsmestu fangaskipti frá tímum kalda stríðsins Erlent Leiðtogi Hezbollah boðar „nýjan fasa“ eftir að farið var yfir „rauðar línur“ Erlent Alldjúp lægð færir með sér gula viðvörun Veður Vildu að Navalní yrði hluti af fangaskiptunum sögulegu Erlent Hlý og góð tilfinning að mæta á Bessastaði Innlent Fleiri fréttir Úrkoman í júlí sló met Fer yfir hvernig maður er með öryggið á oddinum yfir versló Í eðli okkar að fylgjast með náunganum Fékk besta nafnið frá frú Vigdísi Hópar slógust en enginn ætlar að kæra „Hér er um fullkomlega eðlileg viðskipti að ræða“ Hlý og góð tilfinning að mæta á Bessastaði Borinn niður af klettaborginni VG mælist með 3,5 prósent Furðar sig á kjötafurðarstöðvunum Frú forseti, klútaveisla og undrandi bændur Fólk keyri ekki fyrr en tólf tímum eftir síðasta sopa „Mýkri leiðir í hörðum heimi“ Tjá sig ekki eftir fullyrðingar ráðuneytisins í nafnabreytingarmálinu Máttu ekki synja kvikmyndagerðarmanni um eftirvinnslustyrk Fólk á förnum vegi: Ein felldi tár og önnur mjög spennt fyrir Höllu Halla Tómasdóttir orðin sjöundi forseti lýðveldisins „Covid virðist vera komið til að vera“ Allt að verða klárt fyrir embættistöku sjöunda forseta lýðveldisins Árásum gegn opinberum starfsmönnum fari fjölgandi Embættistaka, Covid-19 og hótanir í garð lögreglu Aukinn viðbúnaður til að bregðast við eggvopnaógn Rafbílar rétta aðeins úr kútnum eftir dýfu „Ég hef látið orð út úr mér sem hefðu átt að vera ósögð“ Fjórðungur landsmanna sótti símenntun í fyrra Íbúum með skráð lögheimili í Grindavík fækkað um tæpan þriðjung Vandræðasaga Helga: Skortur á hommum, meint „kerlingartussa“ og Facebook-þumallinn Ók á mann og stakk af Rangt að ráðuneytið hafi gefið út leiðbeiningar um kenninöfn Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílveltu í Sjálandi Sjá meira