Innlent

Legudagar sexfaldast hjá fólki með ADHD

Sólveig Jónsdóttir
Sólveig Jónsdóttir
Fjöldi legudaga hjá þeim einstaklingum sem greindir eru með athyglisbrest með ofvirkni (ADHD) hefur margfaldast á síðustu árum. Fjölgun legudaga er mest hjá einstaklingum undir átján ára aldri, en árið 2005 voru legudagar hjá þeim tíu einstaklingum sem lögðust inn alls 337. Árið 2009 voru þeir 1.035. Eru þetta upplýsingar frá landlæknisembættinu.

Sólveig Jónsdóttir, doktor í klínískri taugasálfræði, segir afar óalgengt að börn séu lögð inn einungis vegna ADHD.

„Börn eru yfirleitt greind með ADHD á göngudeild og þurfa ekki innlögn,“ segir hún. „Það má heldur ekki gleyma því að það eru mjög fáir einstaklingar á bak við þessar tölur og einn eða tveir geta breytt miklu.“

Legudögum hjá fullorðnum hefur fjölgað töluvert síðustu ár og fleiri einstaklingar eru greindir með ADHD.

Páll Matthíasson, framkvæmdastjóri geðsviðs Landspítalans, segir, líkt og Sólveig, að það sé nær útilokað að einstaklingar leggist inn vegna ADHD eingöngu. Hins vegar hafi röskunin í för með sér marga undirliggjandi þætti sem geta valdið því að einstaklingur þarf á sjúkrahúsvist að halda.

„Það er alltaf eitthvað um að fólk sem liggi inni sé með greininguna ADHD, en það er meðfram öðrum vandamálum. Það er sérstaklega mikil skörun við fíknivanda og geðhvörf,“ segir Páll. „Það gerir þetta erfitt. Fólk sem hefði mikið gagn af því að nota lyf er í mikilli hættu á því að misnota þau.“ Hann segist þó ekki vita til þess að misnotkun rítalíns og skyldra lyfja hjá fólki með ADHD sé algengt vandamál.

Varðandi aukinn fjölda greininga ADHD hjá fullorðnum segir Páll að það sé ólíklegt að tíðni röskunarinnar sé almennt að aukast, heldur hafi greiningarkerfið verið bætt og því fleiri greindir ár frá ári.

Páll segir fjölgun legudaga geta skýrst af innlögnum á þær deildir sem hafa lengstan legutíma, eins og öryggisdeildin á Kleppi. Þar sé meðallegutími um það bil eitt ár. Þá bendir hann á að um sé að ræða afar fáa einstaklinga sem leggjast inn og einn eða tveir geti auðveldlega aukið fjölda legudaga um helming. sunna@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×