Erlent

Mladic vísað úr réttarsalnum

Mladic tók ekkert mark á dómstólnum.
Mladic tók ekkert mark á dómstólnum. Mynd/AP
Dómarar stríðsglæpadómstóls á vegum Sameinuðu þjóðanna vísuðu Ratko Mladic, fyrrverandi herforingja Bosníu-Serba, út úr réttarsalnum í gær.

Hann hafði gripið fram í, neitað að lýsa sig sekan eða saklausan og hunsað fyrirmæli réttarins.

Þegar hann var farinn úr salnum skráðu þeir að hann hefði lýst sig saklausan af ákærum um stríðsglæpi, eins og reglur réttarins mæla fyrir um ef sakborningur neitar að bregðast við ákærum.

- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×