Innlent

Kona reyndi sjálfsvíg með kjöthníf

Kona sem flutt var í Kópavogsfangelsið í vikunni reyndi að skera sig á háls með kjöthníf. Hún var í fíkniefnavímu þegar hún kom inn. Í Kópavogsfangelsinu er engin aðstaða til að leita á fólki nema á salerni fangelsisins. Illa gekk að hemja konuna við svo erfiðar aðstæður og hún rauk inn í eldunaraðstöðu fanga, greip þar kjöthníf og ætlaði að skera sig á háls.

Konan virtist til alls líkleg, enda viti sínu fjær af völdum neyslu. Fangaverðir náðu að yfirbuga konuna og setja hana í einangrun. Nú þarf að vista hana með annarri konu, sem hún hafði barið í höfuðið þegar báðar gengu lausar. Sú stakk hana þremur hnífsstungum í höfuðið í átökunum.

Tekið skal fram að eldhúsáhöld í fangelsum landsins eru útbúin þannig að af þeim stafi sem minnst hætta. Til að mynda eru oddar brotnir af hnífum og bit þeirra slævt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×