Innlent

Til fundar við Merkel í Berlín

Jóhanna Sigurðardóttir
Jóhanna Sigurðardóttir
France's President Nicolas Sarkozy, left, welcomes German Chancellor Angela Merkel, for a French-German cabinet meeting, at the Elysee Palace in Paris, Thursday, Feb. 4, 2010.(AP Photo/Michel Euler) sarkozy - merkel
Angela Merkel Þýskalandskanslari hefur boðið Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra til fundar við sig í næstu viku. Jóhanna heldur utan til fundarins eftir helgi. Þetta staðfestir Hrannar Björn Arnarsson, aðstoðarmaður ráðherrans.

Hrannar segir að þær Jóhanna og Merkel muni eiga tvíhliða fund í Berlín á mánudag og muni þar ræða ýmis sameiginleg málefni landanna, án þess að vilja fara nánar út í það.

Þýskaland er eitt helsta viðskiptaríki Íslands í Evrópu, hefur mikil ítök í Evrópusambandinu og auk þess verður Ísland heiðursgestur á bókamessunni í Frankfurt í haust.

- sh




Fleiri fréttir

Sjá meira


×