Innlent

Hundur réðst á ísbjörn og beit

Lögreglan í Reykjavík leitar nú hunds sem beit ísbjörn á Laugavegi í gærdag.
Lögreglan í Reykjavík leitar nú hunds sem beit ísbjörn á Laugavegi í gærdag.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú rottweiler-hunds og eiganda hans eftir að sá fyrrnefndi réðst á gervihvítabjörn á Laugaveginum síðdegis í gær. Myndir náðust af geranda og eiganda hans, sem hurfu á braut.

Dýrið er í eigu verslunar neðarlega í götunni. „Ísbjörninn særðist nokkuð mikið og þarfnast sauma,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni, sem áréttar að hundar eru bannaðir víða í borginni, þar með talið á Austurvelli, Austurstræti, Bankastræti og Laugavegi. „Skiptir þá engu um stærð hunda eða geðslag þeirra, eitt verður yfir alla að ganga,“ segir lögreglan.

- sv




Fleiri fréttir

Sjá meira


×