Innlent

Fjögur af hverjum tíu líkum brennd

Heimir Janusarson í Gufuneskirkjugarði.
Heimir Janusarson í Gufuneskirkjugarði.
Bálförum hefur fjölgað stórlega í Reykjavík og er nú svo komið að fjögur af hverjum tíu líkum eru brennd fyrir útför, samkvæmt tölum frá Kirkjugörðum Reykjavíkurprófastsdæma.

Einnig hefur bálfararbeiðnum fjölgað verulega síðustu ár en nú eru þær á annað þúsund, segir Þórsteinn Ragnarsson, forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma. Slíkt beiðni er gerð í þeim tilgangi að enginn vafi leiki á að beiðandi verði brenndur þegar lokakallið kemur. Hægt er að leggja inn slíka beiðni á heimasíðu kirkjugarðanna.

Þróuninni hnikar í sömu átt á landsvísu en þó ekki með jafn miklum hraða. Árið 2000 var rúmlega 11 prósent líka brennt á landinu en síðan þá hefur þetta hlutfall tvöfaldast. Þórsteinn segir ýmsar skýringar á þessari þróun. „Það ýtir eflaust undir þetta að við erum komin með fallegan duftgarð í Sóllandi,“ segir hann. „En svo líta menn líka til annarra landa þar sem þetta hlutfall er miklu hærra. Svo spilar þessi landnýtingarhugsjón þarna inn í.“

Eins og gefur að skilja tekur duftker mun minna pláss en líkkista en hægt væri að koma sex til sjö duftkerum á sama svæði og notað er fyrir eina líkkistu. Heimir Janusarson, umsjónarmaður Gufuneskirkjugarðs, segir að um helmingur duftkera sé grafinn í gamla reiti. „Það er ekkert óalgengt að sjá tvær kistur og tvö ker í sama reitnum,“ segir hann. Hann segir mikinn hag af þessu. „Bæði nýtist landið betur, síðan er auðveldara fyrir ættingja að þurfa ekki fara á marga staði þegar þeir minnast látinna ættingja og eins er þá fleira fólk sem stendur að reitnum og þá er venjulega hugsað betur um hann en ella,“ segir hann.

Kirkjugarðarnir í Reykjavík hafa í sinni umhirðu um 70 hektara lands. „Svo höfum við fengið úthlutað 22 hektara svæði suðvestur af Úlfarsfelli,“ segir Þórsteinn. „En þó getum við ekki tekið hann í notkun fyrr en framkvæmdir hefjast þar vegna þess að við þurfum um hálfa milljón rúmetra af efni til að leggja ofan á hann. Ef ekkert verður af þeim í bráð þá stöndum við nokkuð ráðþrota því við gætum þurft hann innan næstu tíu ára.“

jse@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×