Innlent

Fundarkröfu um Drekasvæðið enn ósvarað

Kristján L. Möller.
Kristján L. Möller. Mynd/Vilhelm
Engin svör hafa borist frá Kristjáni L. Möller, formanni iðnaðarnefndar Alþingis, við ósk þriggja þingmanna stjórnarandstöðunnar um fund í nefndinni vegna málefna Drekasvæðisins.

Gunnar Bragi Sveinsson, Jón Gunnarsson og Tryggvi Þór Herbertsson óskuðu eftir fundi í iðnaðarnefnd á sunnudag í síðustu viku og ítrekuðu óskina á laugardagsmorgun, að sögn Jóns.

Skylt er að boða til nefndarfundar krefjist þrír eða fleiri nefndarmenn þess. - mþl




Fleiri fréttir

Sjá meira


×