Menning

Stórstjarna stjórnar í Hörpu

Gustavo Dudamel stjórnar Sinfóníuhljómsveit Gautaborgar í Hörpu á sunnudag.
Gustavo Dudamel stjórnar Sinfóníuhljómsveit Gautaborgar í Hörpu á sunnudag.
Sinfóníuhljómsveit Gautaborgar leikur í Hörpu á sunnudag og eru tónleikarnir liður í ferð sveitarinnar um Norðurlönd. Þetta er í fyrsta sinn sem sinfóníuhljómsveitin leikur hér á landi.

Hljómsveitin leikur undir stjórn Gustavo Dudamel, sem þrátt fyrir að vera aðeins þrítugur að aldri á litríkan og merkan feril að baki.

Dudamel er aðalstjórnandi Gautaborgarsinfóníunnar, tónlistarstjóri Fílharmóníunnar í Los Angeles og listrænn stjórnandi Orquesta Sinfónica Simón Bolívar í heimalandi sínu, Venesúela.

Gustavo Dudamel er ein skærasta stjarnan í tónlistarheiminum í dag þrátt fyrir ungan aldur. Tónlistarnám hans hófst í gegnum El Sistema í Venesúela, kerfi sem tónlistarmenn um allan heim líta til sem fyrirmyndar að kerfi tónlistaruppeldis. Níutíu prósent nemenda eru fátæk en fá í gegnum tónlistarnám tækifæri til að læra á hljóðfæri og spila í hljómsveit.

Dudamel, sem er sonur tónlistarmanna, lærði á fiðlu og fékkst við tónsmíðar en var farinn að læra tónlistarstjórn fjórtán ára gamall. Hann hefur vakið mikla athygli, umfjöllun um hann í fréttaskýringaþættinum 60 mínútum var til að mynda kölluð Gustavo the Great, eða Gústaf mikli, en í nýrri heimildarmynd, „Let the Children Play", segir frá stuðningi hans við tónlistarnám barna.

Á efnisskrá tónleikanna í Hörpu verður meðal annars frumflutningur verksins Tiger Touch eftir Karin Rehnqvist, Sinfónía nr. 6 eftir Tsjaíkovskí og Klarinettukonsert eftir Mozart í flutningi einleikarans Martin Fröst, sem er Íslendingum að góðu kunnur, en hann hefur meðal annars komið fram sem einleikari ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands.- sbt






Fleiri fréttir

Sjá meira


×